Sameiginleg dagskrá framundan

UNGLINGASTIG

Öskudagur - miðvikudaginn 17.febrúar.
Kennt verður fyrst tvær kennslustundirnar. Skemmtun verður fyrir unglingastigið í kaffitímanum kl. 9.20 – 9.45. Næstu þrjár kennslustundir fara í stærðfræðiverkefni (síðbúinn Dagur stærðfræðinnar) undir stjórn Guðbjargar Gylfadóttur. Nemendur í 8.bekkjum fara því ekki í íþróttir kl. 11.10. Lagt er til að nemendur komi skrautlega klæddir þennan dag.

Spurningakeppnin.
Fyrsta keppnin fer fram miðvikudaginn 24.febrúar kl. 8.30 – 9.20.
Önnur keppnin fer fram fimmtudaginn 4.mars kl. 10.00 – 10.50.
Þriðja keppnin fer fram föstudaginn 12.mars kl. 11.10 – 11.50.

Skólahreysti.
Úrslitakeppnin innan skólans fer fram í íþróttahúsinu kl. 26.febrúar kl. 9.30 – 10.50. Sveinn Þór sér um skipulag. Gert er ráð fyrir að allir nemendur á unglingastiginu fari til að hvetja og fylgjast með.
Þeir nemendur sem komast áfram munu keppa fyrir hönd skólans í Hafnarfirði fimmtudaginn 18.mars kl. 19.00. Það verður auglýst nánar síðar.

Stærðfræðikeppnin á Suðurnesjum – miðvikudaginn 10.mars.

Umferðarfræðsla í 10.bekkjum.
Berent Karla Hafsteinsson mun vera með fræðslu í 10.bekkjunum.
Gert er ráð fyrir að kennarar verði honum til aðstoðar.
Mánudagur 1.mars kl. 10.15 – 11.30 10.PE (Kennarar:Kristín M. kl.10.15 og Ægir kl.10.55)
Mánudagur 1.mars kl. 12.00 – 13.30 10.K (Kennarar:Pálmi kl.12.00 og Kristín M. kl. 12.45)
Miðvikudagur 3.mars kl. 10.15 – 11.30 10.PI (Kennarar:Kristín M. kl.10.15 og Valdís kl. 10.55)

Heimsókn 9.bekkja í FS - miðvikudaginn 10.mars kl. 9.30 – 13.10
Umsjónarkennarar fara með nemendum í ferðina í Fjölbrautaskóla Suðurnesja.

Árshátíð unglingastigsins - þriðjudaginn 16.mars
Nemendur eru þegar farnir að undirbúa leikrit í umsjón Víðis Guðmundssonar leikstjóra. Nánar auglýst síðar

 

.

 


 

   
         
         
         
   
Grunnskóli Grindavíkur Ásabraut 2 S: 420-1150 skolinn@grindavik.is