| |
|
|
Stuttar fréttir úr
skólalífinu
2004-05 |
|
8. júní
Skólanum
færð höfðingleg gjöf

Þriðjudaginn 7. júní
síðastliðinn var skólanum færð höfðingleg gjöf frá
Ágústu Óskarsdóttur og Pétri Pálssyni. Tilefnið var að
yngsta barn þeirra útskrifast úr skólanum þetta vorið, því
fannst þeim kjörið að sýna skólanum þann þakklætisvott
„að hafa aðstoðað við að koma börnunum þeirra
manns“. Gjöfin var svo sannarlega rausnarleg því þau
færðu skólanum 400.000 kr eða 100.000 kr fyrir hvert þeirra
barna sem þau hafa átt hér í skólanum. Gunnlaugur Dan
skólastjóri tók við gjöfinni og notaði tækifærið til að
þakka kærlega fyrir og sagði að hún muni án efa koma að
góðum notum í skólastarfinu. Auk þess sagði hann frá því
fyrir „þó nokkrum“ árum síðan kom móðir hans með gjöf
til skólans er hennar börn höfði lokið skólagöngu hér við
Grunnskólann. Skólinn vill koma á framfæri sérstöku
þakklæti til þeirra Péturs og Ágústu fyrir þann hlýhug sem
þau hafa sýnt skólanum. Fleiri myndir eru á myndasíðu |
 |
25.maí
Hjólað í vinnuna
Dagana
2. - 13. maí 2005 fór
fram fræðslu- og hvatningarverkefni
Íþrótta- og Ólympíusambands
Íslands (ÍSÍ),
Ísland á iði
þriðja árið í röð. ,,Hjólað í vinnuna" nefnist átakið og er liður í
að hvetja fólk til að geyma bílinn heima þegar haldið er til vinnu
dag hvern, þ.e. að nota sem mest eigið afl til að komast á milli
staða.
Samstarfsaðilar verkefnisins voru:
Ólympíufjölskyldan,
Rás 2, Strætó
BS,
Húsasmiðjan,
Lýðheilsustöð, Landssamtök
hjólreiðamanna (LHM),
Hjólreiðafélag
Reykjavíkur (HFR),
Íslenski
Fjallahjólaklúbburin (ÍFHK) og Hjólreiðanefnd
ÍSÍ.
Grunnskóli Grindavíkur tók nú þátt í fyrsta skipti og af föstu
starfsfólk sem taldist vera 54 þetta tímabil tóku 48 starfsmenn þátt
í átakinu.
Í flokki fyrirtækja og stofnana með 30 - 69 starfsmenn lentum við í
1. sæti
Þessi glæsilega þátttaka og árangur
hvetur okkur auðvitað til dáða og sýnir svo ekki verður um villst
hverskonar kappa vinnustaðurinn hefur á að skipa. Ekkert annað
fyrirtæki né stofnun héðan úr Grindavík tók þátt að við best vitum
og skorum við á aðra vinnustaði að taka þátt að ári svo við
Grindavíkingar vermum ekki aftur13. sæti yfir sveitarfélögin eins og
í ár. |
 |
|
Grindavíkurdeild
Rauða kross Íslands færði nýverið öllum nemendum í 1. bekk
reiðhjólahjálma að gjöf. Framtak þetta er árvisst af hálfu
deildarinnar og miðar að því að auka öryggi nemenda í umferðinni.
Það var Guðfinna Bogadóttir formaður deildarinnar sem afhenti
hjálmana. Þetta er svo sannarlega frábært framtak og á Rauði
Krossinn bestu þakkir skilið. Smelltu á myndirnar hér fyrir
neðan til að stækka þær.
|
 |
|
25.
maí
3. bekkur F í
fjöruferð

Bekkjarfulltrúar 3. bekkjar F
skipulögðu fjöruferð fimmtudaginn 12. maí. Labbað var niður í Bót og
þau komu með hollt og gott nesti með sér.
Krakkarnir skemmtu sér konunglega og fundu mikið af skeljum, kröbbum
og alls kyns dóti. Krakkarnir höfðu orð á því að þetta hefði verið
mjög skemmtileg ferð.
Fleiri myndir eru á myndasíðu skólans.
|
 |
|
Fyrir skömmu færði Hrafnhildur Björgvinsdóttir skólanum fjárupphæð
að gjöf. Gjöfin sem gefin var í minningu um Hafliða Ottósson, var
afrakstur af starfi félagsmiðstöðvar, er bar nafnið Laufin og
Spaðarnir, en nú er aflögð. Óskað var eftir því að upphæðinni væri
varið til forvarnarstarfs með því að efla félagsstarf í skólanum. Fleiri myndir eru á myndasíðu skólans. |
 |
11.maí
„Brúum
Bilið“
Leikskólahópar frá Laut og Króki í heimsókn í skólanum
 Undanfarin ár hefur verið unnið að samstarfsverkefni
skólans og leikskólanna hér í Grindavík undir kjörorðinu „Brúum bilið“.
Síðustu vikur hafa þeir aðilar sem koma að verkefninu verið mjög ötulir
við vinnu því tengdu og miðvikudaginn 11.maí kom síðan svokallaður
skólahópur leikskólanna hingað í heimsókn til að kynna sér skólann og
venjast því sem koma skal á næsta ári og hvernig það væri að vera í
skóla. Áður höfðu hóparnir komið í skólann og unnið að
verkefnum með nemendum 1. bekkjanna. Myndir frá þeirri heimsókn er á
myndasíðu skólans
|
|
 |
29.apríl
Víðavangshlaup
sumardagsins fyrsta

Á sumardaginn
fyrsta þann 21. apríl síðastliðinn var, samkvæmt venju,
þreytt víðavangshlaup Grunnskólans og Foreldrafélagsins. Mikill
fjöldi tók þátt í hlaupinu sem var aldurs- og kynjaskipt.
Nemendur ásamt foreldrum nutu dagsins í frábæru veðri með sól
og hlýju. Allir þátttakendur fengu verðlaunapening fyrir
þátttökuna. Nemendur 3. K voru með hæsta mætingarhlutfallið eða 94%.
Þar með hlaut bekkurinn „Mætingabikarinn“ og mun bekkurinn varðveita hann í
eitt ár. Í öðru sæti, rétt á eftir varð 5.F með 83%, í þriðja til fimmta
sæti varð 10.P, 10.KM og 4.S með 82%. Myndir frá hlaupinu eru á
myndasíðu skólans |
 |
|
11.apríl
Ásta
Katrín sigraði í Stóru-upplestrarkeppninni

Miðvikudaginn 13. apríl
síðastliðinn var lokakeppni Stóru– upplestrarkeppninnar haldin í hátíðarsal
skólans. Keppnin sjálf hófst á degi íslenskrar tungu, 16. nóvember,
fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar. Stefanía Ólafsdóttir stjórnaði
keppninni af mikilli röggsemi. 12 nemendur úr 7. bekkjum kepptu til úrslita
eftir undankeppni þar sem 53 nemendur höfðu tekið þátt.
Keppnin fór þannig fram að í fyrstu umferð lásu keppendur hluta úr verkum
Guðrúnar Helgadóttur og í annarri umferð voru lesin ljóð eftir Jóhannes úr
Kötlum. Að lokum lásu keppendur sjálfvalið ljóð.
Lesarar á lokahátíð voru: Arna Guðmundsdóttir, Ester Nguyen Halldórsdóttir,
Guðmundur Egill Bergsteinsson, Sverrir Karl Björnsson, Telma Rut Gylfadóttir
og Ægir Þorsteinsson úr 7.G og Ásta Katrín Gestsdóttir, Hjalti Magnússon,
Jóhanna Ásta Þórarinsdóttir, Jón Gunnar Kristjánsson, Kolka Hjaltadóttir og
Valþór Óli Vilhelmsson
Dómnefnd mat
lesturinn og eftir fundahöld var tilkynnt um úrslit sem urðu á þann veg að
1. verðlaun hlaut Ásta Katrín Gestsdóttir, Sverrir Karl Björnsson 2.
verðlaun og Kolka Hjaltadóttir hlaut 3. verðlaun.
Þess
má geta að Ásta Katrín lék á píanó, Sólveig úr 9.E á þverflautu, Kolka
Hjlatadóttir og Jóhanna Ásta á tompet. Mary Jean Lerry Sicat las upp á sínu
móðurmáli, filippísku.
Dómnefndina
skipuðu þær Ingibjörg Einarsdóttir formaður, Guðríður Óskarsdóttir, Svava
Agnarsdóttir og María Eir Magnúsdóttir.
Verðlaunin voru ekki af verri endanum því Sparisjóðurinn í Grindavík gaf
þrenn verðlaun, 15 þús. fyrir fyrsta sætið, 10 þúsund fyrir annað sætið og 5
þúsund fyrir fyrsta sætið. Auk þess gaf Edda miðlun bókaverðlaun, og skólinn
gaf öllum keppendum sem komust í úrslit blóm. Glæsileg keppni sem var öllum
til sóma. Hér eru myndir frá lokakeppninni.
Fleiri myndir eru hér á vefsíðu skólans
|
 |
|
11.apríl
Stóra upplestrarkeppnin -úrslitakeppnin
Nemendur 7. bekkja Grunnskóla Grindavíkur taka þátt í Stóru
upplestrarkeppninni 6. árið í röð. Að þessu sinni fer lokakeppnin fram á sal
skólans
miðvikudaginn 13.apríl kl. 17:00.
Lesið verður úr
verkum Guðrúnar Helgadóttur og Jóhannesar úr Kötlum auk valinna ljóða.
Lesarar á
lokahátíð eru: Arna Guðmundsdóttir, Ester Nguyen Halldórsdóttir, Guðmundur
Egill Bergsteinsson, Sverrir Karl Björnsson, Telma Rut Gylfadóttir og Ægir
Þorsteinsson úr 7.G og Ásta Katrín Gestsdóttir, Hjalti Magnússon, Jóhanna
Ásta Þórarinsdóttir, Jón Gunnar Kristjánsson, Kolka Hjaltadóttir og Valþór
Óli Vilhelmsson 7.V.
Dómnefnd mun að
því loknu velja 3 bestu upplesarana og veita verðlaun.
Auk þess koma fram ungir hljóðfæraleikarar og Mary Jean Lerry Sicat mun lesa
upp á sínu móðurmáli.
Veitingar verða í
boði Mjólkursamsölunnar og skólans.
|
 |
|
30.mars
Undankeppni Stóru
-upplestrarkeppninnar
Undankeppni Stóru
Upplestrarkeppninnar var haldin í dag á sal skólans. Keppnin er
árlegur viðburður í skólastarfinu og eru það 7.bekkingar sem taka
þátt í keppninni eins og undanfarin ár. Alls tóku 48 nemendur
þátt að þessu sinni og greinilegt að nemendur hafa æft sig vel í
vetur...
Að þessu sinni komust
Úrslitakeppnin verður haldin þann 13. apríl nk. á sal skólans og eru
foreldrar/forráðamenn hvattir til að mæta og fylgjast með börnunum
sínum... |
 |
|
15.mars
Frábær
árangur í stærðfræðikeppni Suðurnesja

Grindvískir
nemendur náðu mjög
góðum árangri í stærðfræðikeppni grunnskólanna á Suðurnesjum
sem haldin var 23.
febrúar síðastliðinn.
Alls tóku 148 nemendur af Suðurnesjum þátt í keppninni.
Þegar úrslitin voru tilkynnt kom í ljós að Grunnskóli Grindavíkur
sigurvegari keppninnar því nemendur skólans hirtu hvorki meira né minna
2 verðlaun af
9 sem í boði voru.
Enginn
annar skóli var með jafnmarga nemendur í efstu flokkunum. Þess má geta
að Aron Freyr Jóhannsson í 8.J og Óskar Pétursson 10.P enduðu í 2. sæti
í sínum aldursflokki.
Skólinn
sendi 23 nemanda í keppnina og árangurinn var eftirfarandi:
8.
bekkur: 10 nemendur fóru í keppnina.
4 nemendur lentu í 1.-10. sæti,
4 í 11.-29. sæti og tveir
í 50.-72. sæti
9.
bekkur: 7
nemendur fóru í keppnina. 1
nemandi
lenti
í 1.-10. sæti, 5
í 11.-27.sæti og einn í 28.-
38. sæti.
10.
bekkur: 6 nemendur fóru í keppnina.
4 nemendur lentu í 1.-12. sæti,
einn
í 13.-27. sæti og 1
í 28.-38. sæti
Við
getum verið stolt af þessum frábæra árangri og sýnir okkur að Grunnskóli
Grindavíkur er svo sannarlega á réttri leið í þessum efnum eins og svo
mörgum öðrum.
Nemendur
til hamingju með frábæran árangur!!
|
|
15.mars
Viðbótar
kennslustundir fyrir 10. bekkinga
Bæjarstjórn Grindavíkur hefur
ákveðið að leggja til fjármagn til viðbótar kennslustunda í samræmdum
greinum í 10.bekk. Umræður
hafa farið fram á meðal nemenda annars vegar og foreldrahópsins hins
vegar og eru allir á einu máli um að þessara tíma sé þörf.
Búið er að ákveða að hefja kennslu strax eftir páska.
Kennt verður á föstudögum
kl. 14:00 – 17:00 og á laugardagsmorgnum kl. 09:00 – 12:00
|
 |
19.febrúar
Leikhúsferð
unglingastigsins
 Þan 17.febrúar skelltu
nemendur unglingastigsins sér í betri fötin, tóku góða skapið með
sér og lögðu af stað á dýrslega sýningu Verslunarskólans „Welcome
to the jungle“ Nemendur skemmtu sér
svo sannarlega vel á sýningunni. Eins og síðustu ár voru þeir sjálfum
sér og skólanum til mikils sóma. Sjá nánar á myndasíðu
skólans. |
 |
16.febrúar
Sólveig Dröfn með besta
einkennismerkið
 Undanfarnar vikur hafa nemendur
frá 6.-10.bekkja tekið þátt í samkeppni um besta einkennismerki
árshátíðar skólans nú í mars og söngleiksins Grease. S'olveig hlaut
að launum bókargjöf fyrir hönnunina. Hér tekur Sólveig
við verðlaunum úr höndum Gunnlaugs skólastjóra. Til hamingju
Sólveig!!! |
 |
16.febrúar
10.P sigraði í spurningakeppni
unglingastigsins
 Úrslitakeppni spurningakeppninnar hófst
á mánudaginn var, þann 14.febrúar, er 9.P og 9.E kepptu á sal skólans. Skemmst er frá því að
segja að 9.P sigraði nokkuð örugglega með 34 stigum gegn 5. Þá
sigraði 10.P nemendur í 9.E með 38 stigum gegn 9. Því var um
hreinan úrslitaviðureign milli 10.P og 9.P. 10. bekkingar þurftu
einungis jafntefli til að sigra í keppninni, en það blés á móti í
byrjun því 9. bekkingar náðu forystunni og héldu henni mestan hluta
keppninnar. En 10.P seig fram úr á síðustu metrunum og sigraði
nokkuð örugglega með 27 stigum gegn 20 við mikinn fögnuð
samnemenda. Til hamingju með sigurinn 10.P. Sjá myndasíðu frá
keppninni -smelltu
hér |
|
13.febrúar
Foreldraviðtöl á
unglingastiginu
Fimmtudaginn 17. febrúar verða nemendur boðaðir í viðtal ásamt
foreldri/forráðamanni þar sem vitnisburður verður afhentur, farið yfir stöðu
nemandans í náminu og annað sem kann að brenna á vörum manna.
|
 |
7.febrúar
Niðurstöður
foreldrakönnunar um
skólastarfið í 4. og 7. bekk
Könnun tekin í janúar 2005.
Við
annarskil voru foreldrar boðaðir í viðtöl og í framhaldi af þeim beðnir
um að svara rafrænni könnun um viðhorf þeirra til
skólastarfsins sem og stjórnunar skólans, líðan og aðbúnaðar
barna sinna o. fl.
Í
þessum bekkjardeildum eru samtals 92 nemendur og svöruðu foreldrar/
foreldri
48 nemenda eða 52%. Við
þökkum þeim sem sáu sér fært að mæta og taka þátt, kærlega fyrir.
Nánari
niðurstöður - smelltu hér
|
 |
4.febrúar
Gríðarleg fjölgun nemenda það
sem af er skólaárinu
Gríðarleg fjölgun hefur orðið
á innritun nýrra nemenda það sem af er skólaárinu. Hvorki fleiri né
færri en 48 nemendur hafa verið innritaðir frá skólabyrjun og um 12 hafa
kvatt skólann okkar. Þetta gerir um 8% aukningu á heildarfjölda nemenda og
miðað við þessar tölur kæmi engum á óvart þó fjöldinn kæmist yfir 500 á
næstu misserum.
|
 |
2.febrúar
Samræmd próf í 4.
og 7. bekk
Samræmd
próf í 4. og 7. bekk verða fimmtudaginn og föstudaginn 3.- 4.febrúar
4.
bekkur
-
fimmtudagur
3. febrúar Íslenska kl. 9:30-12:00
-
föstudagur
4. febrúar Stærðfræði kl. 9:30-12:00
7.
bekkur
-
fimmtudagur
3. febrúar Íslenska kl. 9:30-12:00
-
föstudagur
4. febrúar Stærðfræði kl. 9:30-12:00
|
 |
|
18.jan
Skíðaferð á vegum Þrumunnar og skólans
Undirbúningur er hafinn að skíðaferð á vegum Þrumunnar og skólans . Um er að
ræða dagsferð um helgi og auglýst er hér með
eftir foreldrum
til að sinna gæslu í ferðinni og jafnvel að taka þátt í
undirbúningi.
Þeir sem hafa áhuga eða sjá sér fært geta haft samband við Ágústu í
Þrumunni. |
 |
|
18.des
Litlu jólin hjá yngri
nemendum

Þann
18. desember komu nemendur í skólann til að halda litlu jólin
hátíðleg með kennurum og starfsfólki. Margt var til gamans
gert, m.a. gengið í kringum jólatréð og sungin jólalög. Hjá
þeim yngstu kom meira að segja jólasveinn í heimsókn og ræddi við
börnin, söng með þeim. Það vakti
mikla kátínu meðal nemendanna sem fóru í
stofurnar sínar með umsjónarkennara, hlustuðu á jólasögu, drukku
gos og borðuðu góðgæti við kertaljós. Auk þess skiptust
nemendur á gjöfum sem. Fleiri myndir eru á myndasíðunni. Smelltu
hér. |
 |
|
17.des
Spuningakeppni
unglingastigsins
 Undankeppni
spurningakeppni skólans var
haldin síðasta skóladaginn fyrir jólafrí unglingadeildarinnar föstudaginn
17. desember.
Þrjú eftirfarandi lið keppa til úrslita, 10.P,
9.E og 9.P. Spyrill
í keppninni var Pálmi Ingólfsson og Ægir Viktorsson stigavörður.
Úrslitin urðu eftirfarandi:
10.P - 8.J =19-14
8.Æ- 9.E = 8-12
10.KM - 9.P = 20-21
Fleiri myndir eru frá keppninni - smelltu
hér |
 |
|
15.des
Nemendur syngja fyrir unga sem
aldna
 Þann 15.desember brugðu nemendur
undir sig betri fætinum með flauelsraddir í farteskinu og héldu
nokkrar stofnanir hér í Grindavík. 10. bekkingar fóru á öldrunarheimilið
Víðihlíð, 9. bekkur á leikskólann Krók og 8. bekkur á
leikskólann Laut. Tilgangur ferðarinnar var að
syngja nokkur jólalög, njóta stundar
með þeim og létta lund þeirra sem þar voru. Fleiri myndir eru á
skólasíðunni -
smelltu hér |
 |
13.des
Felix
Bergsson í heimsókn hjá yngri nemendunum
 Mánudaginn
13. desember heimsótti hinn landsfrægi leikari, Felix Bergsson, nemendur
á yngri stigum. Hann las upp úr bókinni Augasteinn, kynnti nokkrar
persónur á sinn einstæða hátt með leikrænum tilburðum. Að því
loknu söng hann eitt jólalag og spjallaði við nemendur í stutta
stund. Það var greinilegt að hann náði vel til nemenda sem
hlustuðu af mikilli athygli og ánægju. Fleiri myndir eru frá
heimsókninni - smelltu hér |
 |
6.des
Jólaföndur Foreldrafélagsins
Jólaföndrið tókst með ágætum,
mjög góð mæting og kökur frá foreldrum skiluðu sér mjög og vill Stjórn FGG
þakka foreldrum fyrir það. Stjórnin verður að biðjast afsökunar á því að
margt af því föndri sem í boði var seldist upp en ástæðan fyrir því er að
við fengum minna afhent en um var talað og er þetta bara eitthvað til að
læra á. Stjórnin vill þakka sérstaklega þeim sem komu til að aðstoða við
jólaföndrið. Fleiri myndir eru á
myndasíðu skólans. |
 |
3.des
Breytt skóladagatal
Vegna þeirrar röskunar sem
orðið hefur á starfsáætlun skólans, hafa eftirfarandi breytingar verið
gerðar:
Námsmat í 1.- 4. bekk fer
fram í janúar 2005
Samræmd próf í 4. og 7. bekk fara fram 3. og 4. febrúar 2005
Samræmd próf í 10. bekk fara fram á tímabilinu 9. – 18. maí 2005
Vitnisburður í 1. - 7. bekk afhentur 27. janúar.
Ekki hefur verið tekin
afstaða til þess af hálfu bæjaryfirvalda hvort þau leggi til að nemendum
verði að einhverju leyti bættur sá tími sem þau misstu úr vegna verkfalls. |
 |
3.des
Halldór Ingvason lætur af störfum um áramót

Nú um áramót lætur Halldór
Ingvason félagsmálafulltrúi og skólafulltrúi Grindavíkurbæjar af störfum.
Halldór hefur haft afskipti af málefnum skólans allt frá árinu 1962 og nær
samfellt til dagsins í dag. Fyrst sem kennari við skólann, síðan yfirkennari
og síðast skólafulltrúi bæjarins. Starfsfólk Grunnskólans færir Halldóri
bestu þakkir fyrir samstarfið og þann stuðning sem hann ávallt sýndi
skólastarfinu. Við viljum jafnframt bjóða nýráðinn skólafulltrúa Nökkva Má
Jónsson velkominn til starfa. |
 |
3.des
Eldvarnir í skólann
Eldvarnarvika hjá 3. bekk

Eldvarnarvika var vikuna 29.
nóv – 3. des og af því tilefni fóru 3. bekkingar í heimsókn á slökkvistöðina
til hans Ásmundar. Þar lærðu þau ýmislegt í tengslum við eldvarnir. Þau voru
leyst út með gjöfum og þökkuðu þau kærlega fyrir sig. Meðfylgjandi mynd er
tekin við það tækifæri. |
 |
24.nóv
Heimsókn í skólann
Rithöfundur
í heimsókn
 Miðvikudaginn
24. nóvember fengu nemendur góðan gest heimsókn. Rithöfundurinn Draumey
Aradóttir las upp úr verkum sínum og nemendur hlustuðu með miklum
áhuga á hana lesa upp úr nýútkominni bók sinni „Birta“.
Draumey hefur verið búsett í Lundi í Svíþjóð frá árinu 1998 og skrapp hingað
til lands í nokkra daga til að kynna nýútkomna bók sína. Myndir frá heimsókninni er á myndasíðu skólans.
smelltu hér |
 |
22.nóv
Hönnunarkeppni félagsmiðstöðvanna
Frábær árangur í Hönnunarkeppni
Samfés- Stílnum 2004

45 félagsmiðstöðvar sendu
lið til þátttöku í þessari metnaðarfullu og glæsilegu keppni. Afrakstur
dagsins var sýndur á sviðinu eftir um tveggja tíma vinnu þátttakenda. Um
eittþúsund manns voru í húsinu þegar hvert listaverkið á fætur öðru steig
inn í sviðsljósin og voru allir sammála um að sjaldan hefur keppnin verið
glæsilegri.
Veitt voru 8 verðlaunasæti fyrir ýmsa flokka en okkar stúlkur lentu í 2.
sæti í aðalflokki keppninnar um heildarútlitið, þ.e. hár, hönnun,
förðun og hvernig allt það tvinnaðist saman að mati dómnefndar. Þær slógu
svo sannarlega í gegn og við óskum þeim til hamingju með árangurinn:
Eftirfarandi nemendur voru í hópnum: Gréta Halldórsdóttir 9.P, Elínborg
Ingvarsdóttir 9.P, Stefanía Ósk Margeirsdóttir 8.J og Hrönn Árnadóttir 9.P |
 |
22.nóv
Foreldrafélagið
Jólaföndur Foreldrafélagsins
Framundan er hið árlega jólaföndur, Það hefur verið ákveðið
laugardaginn 4. desember. Eins og hefð er orðin fyrir mun FGG selja kaffi
og kökuhlaðborð á jólaföndrinu til fjáröflunar og eru það foreldrar sem gefa
kökurnar. Ágóðanum af kökusölunni hefur verið ráðstafað á ýmsan hátt eins
og t.d. kaupa á ritþjálfa, boltum og til að halda námskeið fyrir
bekkjarfulltrúa svo eitthvað sé nefnt. Sem sagt, sjáumst öll í jólaskapi á
jólaföndrinu laugardaginn 4. desember kl. 13:00. |
 |
22.nóv
Hönnunarkeppni Þrumunnar og skólans
Hönnunarkeppni Þrumunnar og skólans var haldin
föstudaginn 5. nóvember
Það var svo sannarlega fjör er nemendur á
unglingastigi lögðu undir sig eina álmu skólans föstudaginn 5.
nóvember síðastliðinn. Ástæðan var að þennan dag var haldin
hönnunarkeppni á vegum Þrumunnar og skólans undir heitinu „Stíll
2004“ Ótrúlega skemmtilegar og frumlegar útfærslur litu dagsins
ljós. Sumir voru aðeins á stuttubuxum og líkami þeirra málaður
frá toppi til táar í bresku fánalitunum, aðrir notuðu liti
Ungmennafélagsins. Skemmst er frá því að segja að hópurinn
„Gula línan“ sigraði í keppninni og var fulltrúi Grindavíkur í
úrslitakeppni félagsmiðstöðvanna sem haldin var í Íþróttahúsi
Digranesskóla. Þar stóðu þær sig frábærlega er þær náðu 2.
sætinu hvað varðar heildarútlitið.
Myndir komnar á myndasíðu frá hönnunarkeppninni
-
smelltu hér |
|
4.nóv
Unglingastigið
Annarprófum á unglingastigi
frestað fram í desember
Námsmati og vitnisburði á unglingastiginu sem
vera átti í nóvember hefur verið frestað til 1.-6. desember.
Vitnisburðardagur verður þriðjudaginn 14.desember. |
 |
Stuttar
fréttir úr skólalífinu 2009-10
Stuttar
fréttir úr skólalífinu 2008-09
Stuttar fréttir úr skólalífinu
2007-08
Stuttar fréttir úr skólalífinu
2006-07
Stuttar fréttir úr skólalífinu
2005-06
Stuttar fréttir úr skólalífinu
2004-05
|
|
|
|