|
Stuttar fréttir úr
skólalífinu
2006-07 |
|
|
21.maí
Frábær árangur
í úrslitum Skólaþríþrautar

Stelpurnar sem komust áfram í úrslitin í
Skólaþríþrautinni kepptu sunnudaginn 20.maí í frjálsíþróttahöllinni
í Laugardag. Jeanne í 6.S. komst því miður ekki að keppa og var
leiðinlegt að sjá hana ekki keppa til úrslita. Þeim hinum 4 gekk
mjög vel miðað við að hafa aldrei áður keppt í frjálsum íþróttum.
Stressið gerði þeim svolítinn grikk og þær áttu mikið inni. Hægt er
að sjá heildarúrslitin á netinu, farið á slóðina fri.is og inní
mótaforrit. Þar eru öll úrslit frá þessu móti. Það vantaði ennþá
inní stigin úr kúluvarpinu á sunnudeginum en vonandi komið inn núna.
Andrea varð 4 í sínum flokki. Kristín og Hulda voru meðal 8 efstu.
Allir þeir sem voru í efstu 3 sætunum í öllum flokkum eru eða hafa
verið að æfa frjálsar. Þær eiga því framtíðina fyrir sér í frjálsum.
Ég hvet alla sem hafa
áhuga að koma æfa frjálsar í sumar. Við munum byrja með frjálsar í
sumar og munu nánari upplýsingar um æfingarnar koma á næstunni til
allra nemenda í skólanum.
|
 |
14.maí
Kennarar Fossvogsskóla kynna sér
uppbyggingarstefnuna í skólanum

Nokkrir kennarar Fossvogsskóla komu,
föstudaginn 11. maí síðastliðinn í heimsókn í skólann.
Megintilgangurinn með heimsókninni var að kynna sér nánar
uppbyggingarstefnuna sem skólinn hefur verið að innleiða á undaförnum
árum. Þeir heimsóttu nokkra bekki, fengu innsýn inn í kennsluhætti
á öllum aldursstigum og sáu með eigin augum hvernig uppbyggingarstefnan
væri samofin öllu inntaki skólastarfsins. Myndir frá heimsókninni
má sjá á myndasíðu skólans. |
 |
14.maí
Nemendur 10. bekkja í starfskynningu

Að samræmdu prófunum loknum nýttu nemendur
10. bekkja nokkra daga til að kynna sér starfsemi einstakra fyrirtækja
og stofanna ásamt því leggja fram sinn skref í vinnuframlagi til þess
sem þeir voru hjá. Nemendur fengu með þessu tækifæri til að takast á við
og læra af eigin raun það sem fyrirtækið sérhæfði sig í. Nokkrir
nemendur ákváðu að nýta starfskynningardagana til að kynna sér starf
skólaliða skólans. Þeir unnu við skúringar, frímínútnagæslu ofl. Hér má
sjá myndir af þeim að störfum. |
 |
11.maí
Frábær árangur í skólaþríþraut stúlkna
Grunnskóli Grindavíkur tók fyrir stuttu þátt í
skólaþríþraut FRÍ í drengja og stúlknaflokkum og náði vægast sagt
frábærum árangri. Hvorki fleiri né færri en fimm stúlkur úr
skólanum náðu að komast í úrslitakeppni sem haldin verður í
Laugardalshöll sunnudaginn 20. maí nk.Til þess að komast í úrslit þurfti
hver keppandi að ná því að vera meðal 16 efstu í sínum aldursflokki.
Drengirnir náðu góðum árangri þó þeir náðu ekki að tryggja sér sæti í
úrslitum þetta árið. Til marks um þetta afrek má nefna að aðeins
tveir skólar eru með fleiri keppendur í úrslitum. Samtals keppa um 64
einstaklingar á næstkomandi sunnudag. Til hamingju með árangurinn
og gangi ykkur vel. Hér má fylgjast með keppninni á vef FRÍ.
Smellið hér.
Eftirfarandi stúlkur keppa í úrslitakeppninni:
| Andrea Björt Ólafsdóttir |
| Hulda Sif Steingrímsdóttir |
| Julia Lane Figueroa Sicat |
| Kristín Lára Björnsdóttir |
| Sigríður Björnsdóttir |
|
 |
|
Víðavangshlaup skólans á sumardaginn
fyrsta Sumardagurinn fyrsti.
Að venju verður víðavangshlaup skólans á þeim degi. Skráning hefst kl.
10.30 og hlaupið kl. 11.00. Keppt verður í eftirfarandi flokkum: 1.- 4.
bekkur, 5. - 7. bekkur og 8. - 10. bekkur. Drengir hlaupa saman og
stúlkur saman. Veittar verða viðurkenningar að hlaupi loknu til þeirra
þriggja keppenda sem fyrstir verða í hverjum flokki. Sá bekkur sem
verður með bestu þátttökuna í hlaupinu fær farandbikar til varðveislu í
eitt ár.
Foreldrafélagið mun bjóða upp á prins póló ( 50 kr.) og svala ( 50
kr.) í tengslum við víðavangshlaupið. Jafnframt mun foreldrafélagið
veita öllum þeim sem þátt taka í hlaupinu viðurkenningu fyrir
þátttökuna. |
 |
23.mars
Spurningakeppni unglingastigsins
10.P sigurvegari
 Síðasti
leikurinn í úrslitakeppninni var viðureign 9.P og 10.P. Leikurinn
var hnífjafn og æsispennandi allt fram til að síðustu spurningunni er
staðan var 24-26. Síðasta spurningin var gáta og 10.P svaraði
fyrst en náði ekki réttu svari. Við það fengu 9.bekkingar tækifæri
til að jafna leikinn og um leið sigra í keppninni en svarið þeirra brást
og 10.P fór því með sigur af hólmi 24-26. Til hamingju með
titilinn 10.P.
sjá nánar |
 |
21.mars
Frábær árangur
í stærðfræðikeppni Suðurnesja
Grindvískir nemendur náðu mjög góðum árangri í stærðfræðikeppni
grunnskólanna á Suðurnesjum sem haldin var 27. febrúar síðastliðinn.
Alls tóku 126 nemendur af Suðurnesjum þátt í keppninni.
Þegar úrslitin voru tilkynnt kom í ljós að Grunnskóli Grindavíkur án efa
sigurvegari keppninnar því nemendur skólans hirtu hvorki meira né minna
2 verðlaun af 9 sem í boði voru og enginn annar skóli var með jafnmarga
nemendur í efstu flokkunum. Þess má geta að Hjalti Magnússon í 9.E og
Steinar Agnarsson 8.Æ sigruðu í sínum aldursflokki, Aron Freyr
Jóhannsson í 10.KM endaði í 2. sæti í sínum aldursflokki og Sverrir Karl
Björnsson 9.P endaði í 3. sæti.
Skólinn sendi 17 nemendur í keppnina og árangurinn var eftirfarandi:
8. bekkur:
5 nemendur fóru í
keppnina. 1 nemendur lenti í 1. sæti, 2 lentu í 11.-29. sæti og tveir
í 32.-42. sæti
9. bekkur:
6 nemendur fóru í
keppnina. 4 nemendur lentu í 1.-10. sæti, 2 lentu í 11.-20.sæti.
10. bekkur:
6 nemendur fóru í
keppnina. 4 nemendur lentu í 1.-12. sæti, einn lenti í 13.-27. sæti og
1 í 28.-38. sæti
Við getum verið stolt af þessum frábæra árangri og sýnir
okkur að Grunnskóli Grindavíkur er svo sannarlega á réttri leið í þessum
efnum eins og svo mörgum öðrum.
Nemendur til hamingju með frábæran árangur!!! |
 |
|
20.mars
„Gaman saman“
Þetta er yfirskrift
á viðfangsefni sem kennarar á yngsta stigi vinna saman að þessa dagana.
Markmiðið með því er að beina sjónum okkar allra í
skólasamfélaginu ( nemenda, starfsfólks og foreldra ) að jákvæðum og
uppbyggilegum samskiptum barna á stiginu, veita þeim nemendum sem fara
eftir þeim samskiptareglum sem við viljum sjá viðhafar á göngum, í
matsal,í
frímínútum og í skólastofum athygli. Myndir af þessum nemendum eru
hengdar upp á tveimur stöðum í skólanum undir yfirskriftinni GAMAN SAMAN
!
Það gleymist oft í umfangi erfiðra agamála að lang-stærstur hluti
nemenda á í jákvæðum og uppbyggilegum samskiptum við sína skólafélaga.
Að beina sjónum að því sem vel/rétt er gert getur verið liður í því að
aðstoða þá sem geta gert betur, því það er aldrei svo að sá sem gerir
mistök hafi ekki gert neitt rétt eða vel.
Sem uppalendur þurfum við alltaf að hafa þetta að leiðarljósi og t.d. að
loknum skóladegi að byrja að spyrja börnin hvað það var sem gekk vel, í
hverju fannst þeim þau standa sig best og svo framvegis. |
 |
22.mars
Stóra-Upplestrarkeppnin
úrslitakeppni 22.mars 2007

Lokahátíð Stóru
upplestrarkeppninnar fór fram í Gerðaskóla fimmtudaginn 22. mars. Í
þetta sinn var Grunnskóli Grindavíkur með lokahátíð með Gerðaskóla og
Stóru – Vogaskóla en ekki er lengur leyfilegt að aðeins einn skóli
standi að lokahátíð. Lokahátíð næsta skólaárs verður haldin hér í
skólanum.
Lesarar á lokahátíðinni voru 12, 4 frá hverjum skóla. Fulltrúar frá
okkar skóla voru Telma Sif Reynisdóttir, Alexandra Marý Hauksdóttir,
Kjartan Helgi Steinþórsson og Ingibjörg Yrsa Ellertsdóttir og stóðu þau
sig öll frábærlega og getum við verið virkilega stolt af okkar fólki.
Gunnar Þorsteinsson lék Habanera á gítar í hléi. Í dómnefnd var einn úr
hverjum skóla og síðan tveir dómarar frá Röddum, samtökum um vandaðan
upplestur.
meira |
 |
13.mars
Hjálparhendur í Grindavík
Verkefni sem
eykur jákvæða og umhyggjusama hegðun hjá börnum.
Skólarnir í Grindavík hafa ákveðið að taka þátt í verkefninu
Hjálparhendur fyrir elstu árgangana í leikskólanum og í 1.-3. bekk í
grunnskólanum. Verkefninu er stjórnað af Upledger stofnuninni sem var
stofnuð árið 1986 af Dr. John E. Upledger sem er einn af frumkvöðlum
höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferðarinnar. Útibú var stofnað á Íslandi
árið 2004 og býður það upp á verkefnið Hjálparhendur í skólum og
leikskólum um land allt. Grindavík er fyrsta bæjarfélagið sem ákveður að
vinna verkefnið heildrænt, þ.e. að samræma vinnuaðferðir á skólastigunum
tveimur og eru vonir bundnar við að jákvæð hegðun aukist til muna í
kjölfarið.meira |
 |
2.mars
Heimsókn frá starfsfólki Grunnskólans í
Þorlákshöfn
Föstudaginn 2.mars síðastliðinn fengum við í heimsókn starfsfólks
Grunnskólans í Þorlákshöfn. Tilgangur ferðar þeirra var að fá
innsýn inn í skólastarfið og kynna sér ýmsar nýjungar sem skólinn hefur
verið að vinna að, sbr. Uppbyggingarstefnuna og kennsluhætti sem hafa
verið innleiddir í skólastarfið. Gunnlaugur tók á móti gestunum og
að loknum veitingum og almennri tölu um starfsemina fengu kennarar að
lítast um í kennslustofum og sjá nemendur við vinnu. Að því loknum
kynnti María Eir fyrir þeim hugmyndafræði, markmið og áhrif
uppbyggingarstefnunnar á nám og samskipti innan skólans.
Sjá myndir frá heimsókninni á myndasíðu skólans. |
 |
28.febrúar
Undankeppni
Stóru upplestrarkeppninnar

Miðvikudaginn 28.febrúar var undankeppni Stóru upplestrarkeppninnar haldin á
Sal skólans. Að þessu sinni verður Grunnskóli Grindavíkur með Gerðaskóla og
Stóru-Vogaskóla á lokahátíð og verður hún haldin í Gerðaskóla fimmtudaginn
22.mars og sendum við þangað fjóra fulltrúa. Þetta er í sjöunda skipti sem
skólinn hér tekur þátt í þessari keppni en við hófum þátttöku árið 2000.
Þessir lesarar tóku þátt í undankeppninni að þessu sinni: Alexandra Marý
Hauksdóttir, Gunnar Þorsteinsson, Herta Pálmadóttir, Ingibjörg Yrsa
Ellertsdóttir og Sunneva Jóhannsdóttir úr 7.F. Hafþór Waldorff, Júlía Helga
Jakobsdóttir, Lára Björk Ingibergsdóttir og Telma Sif Reynisdóttir úr 7.G.
Frosti Grétarsson, Hilmar Örn Benediktsson, Kjartan Helgi Steinþórsson,
Ríkharður Þór Guðfinnsson og Þyri Magnúsdóttir úr 7.P.
Allir þessir nemendur stóðu sig
með stakri prýði en þeir sem stóðu sig best og verða fulltrúar skólans eru:
Alexandra Marý, Ingibjörg Yrsa, Kjartan Helgi og Thelma Sif. |
 |
|
23.febrúar
Stakkavík færir skólanum
veðurstöð að gjöf

Föstudaginn 23. febrúar færði
útgerðarfélagið Stakkavík skólanum veðurstöð að gjöf. Skólinn hefur
á núverandi skólaári tekið þátt í Evrópsku samstarfsverkefni, Comenius,
með skólum frá Noregi, Bretlandi, Ítalíu og Þýskalandi.
Samstarfsverkefnið ber heitið „Maths for fun“ eða „Stærðfræði fyrir alla“
og meginmarkmið skólans að vinna með stærðfræði úr umhverfinu. Einn
liður þess er að nemendur vinni með veðurfar, tölulegar rannsóknir og
greiningar. Þess vegna er það kærkomið að forsvarsmenn Stakkavíkur
hafi sýnt þessu máli svo góðan skilning með þessari rausnarlegu gjöf.
Gunnlaugur Dan skólastjóri veitti gjöfinni viðtöku og þakkaði þann góða
stuðning sem fyrirtækið sýndi í verki. |
 |
21.febrúar
Öskudagur í skólanum

Miðvikudaginn
21. febrúar síðastliðinn var öskudagur haldinn með sérstöku sniði hér í
skólanum. Nemendur á eldri stigum komu klæddir í búningum af öllum
stærðum, gerðum og litum. Þeir sem yngri voru, mættu í náttfötum.
Var haldið náttfataball fyrir yngsta stigið. Miðstigið skemmti með dansi
á sal skólans.
Margir kennarar skólans létu ekki sitt eftir liggja (sérstaklega
kennarar yngri nemenda) og voru skrautlega
klæddir. Annars tala myndirnar sínu máli. |
 |
4. febrúar
Er
Veraldarvefurinn völundarhús?
Ráðstefna á Alþjóðlega netöryggisdaginn
Tími: Þriðjudaginn 6.
febrúar kl. 15:00 – 17:25
Staður: Íslensk erfðagreining, Sturlugötu 8, Reykjavík
SAFT, Síminn, Microsoft, SMÁÍS og Samtónn
boða til ráðstefnu um skynsama notkun og örugg samskipti á Netinu á
Alþjóðlega netöryggisdaginn þann 6. febrúar nk.
Siðferði og Netið eru æ oftar nefnd í sömu
andrá enda Netið síbreytilegur vettvangur sem við erum stöðugt að venjast
og læra samfara auknum tengingum við aðra miðla. Rætt um að þeir
umgengnishættir sem við höfum komið okkur saman um í hinu áþreifanlega
umhverfi hafi ekki færst yfir á vettvang Netsins. Einnig er rætt um að
netnotkun einstaklinga í skóla eða vinnu sé önnur en sú sem fer fram
heima. Mikið vanti því á að við séum meðvituð um eðli Netsins og jákvæða
jafnt sem neikvæða eiginleika þess. Þessi atriði verða meðal annars til
umræðu á ráðstefnunni sem ætluð er öllum sem áhuga hafa á þessum málum.
Sérstaklega höfðar hún til skólastjórnenda, kennara og kennaranema,
foreldra, fjölmiðlafólks, höfundarétthafa og útgefenda, netþjónustuaðila
og fulltrúa stjórnvalda og starfsfólks þeirra stofnana sem hafa með reglur
um notkun upplýsingatækninnar að gera sjá nánar á vef
SAFT.IS |
 |
27.febrúar
Stærðfræðikeppni grunnskólanna
Þá fer að líða að árlegu stærðfræðikeppni
grunnskólanna. Keppnin verður haldin í Fjölbrautaskóla Suðurnesja
þriðjudaginn 27. febrúar kl 16:00 og verður hún með sama fyrirkomulagi og
venjulega. Keppnin er fyrir 8., 9. og 10. bekk. |
 |
26. janúar
Indíánadagur í 1. bekk

Föstudaginn 26. janúar var indíánadagur í
1. bekkjum skólans í tengslum við bókstafinn I.
Nemendur bjuggu til indíánahatta og hálsfestar og fengu stríðsmálningu í
andlitið. Öllum hópnum var blandað saman og þeim síðan skipt niður í þrjá
ættbálka, Sioux, Apalache og Navajo. Ættbálkarnir fóru á milli þriggja
stöðva þar sem þeir dönsuðu regndans, léku sér í indíánaleik og fóru í
göngutúr um skólann.
Indíánadagurinn tókst frábærlega í alla staði og var þetta góður endir á
góðri viku í 1. bekk. Fleiri myndir eru á myndasíðunni.
|
 |
8.janúar
Fyrirlestur um átröskun
Þriðjudaginn 9. janúar kl.
20.00 mun Spegillinn, félag aðstandenda átröskunarsjúklinga bjóða foreldrum
upp á forvarnafyrirlestur í stofu 202 í Grunnskóla Grindavíkur.
Fyrirlesarar eru Margrét Gísladóttir geðhjúkrunarfræðingur og Kolbrún
Marelsdóttir foreldri og varaformaður Spegilsins. Þetta er athyglisverður
fyrirlestur og eru foreldrar hvattir til að mæta! |
 |
19.des
Spurningakeppni á unglingastiginu - undankeppnin

Undankeppni spurningakeppni skólans var haldin síðasta skóladaginn fyrir
jólafrí unglingadeildarinnar þriðjudaginn 19. desember. Þrjú eftirfarandi
lið keppa til úrslita eftir áramót. Þau eru
10.KM, 9.P og 10.P.
Spyrill í keppninni var Pálmi Ingólfsson og stigavörður var Ægir Viktorsson.
Keppninni verður haldið áfram á nýju ári.
Úrslitin urðu eftirfarandi:
10.KM - 9.E =19 -11
9.P- 8.Æ = 23 -12
10.P - 8.V = 12 - 11 |
 |
13. og 15.des
Unglingadeild syngur á leikskólunum og Víðihlíð

Þann 13.desember brugðu nemendur 9. bekkja
undir sig betri fætinum á leikskólann Krók. Tilgangur ferðarinnar var
að syngja nokkur jólalög, njóta stundar með þeim og létta lund þeirra sem
þar voru. Fyrst dönsuðu þeir í kringum jólatréð, leiddu krakkana og sungu
með þeim nokkur skemmtileg jólalög.
meira
Föstudaginn á eftir, 15. des. Gengu 10. bekkingar í
Víðihlíð að heimsækja eldri borgara og njóta góðrar stundar með þeim.
Þar sungu nemendur fyrir þá eldri og þáðu síðan djús og piparkökur að
söngnum loknum. Hér má sjá myndir frá Víðihlíð. Smelltu á þær
til að stækka. |
 |
18.des
Fyrirlestur um einelti

Mánudaginn 18. desember var
á unglingastiginu, fjallað um einelti og áhrif þess á einstaklinginn.
Af því tilefni var gamall nemandi skólans fenginn til að halda fyrirlestur
um málið og sagði hann frá sinni reynslu af málefninu. Að
fyrirlestrinum loknum fengu nemendur tækifæri til að spyrja þennan
einstakling um hans reynslu og fleira sem málinu kom við. Það þarf
mikið hugrekki til að stíga fram fyrir skjöldu og viðurkenna einelti, hvort
sem það er þolandi eða gerandi.
meira |
 |
1.des
Brunavarnaæfing haldin í skólanum

Þann 1. desember var brunavarnaæfing haldin í skólanum.
Nemendur og starfsfólk skólans ásamt slökkviliði og lögreglu tók þátt í
þessari æfingu þar sem samhæfð var rýmingar- og björgunaráætlun sem miðast
við hvað skuli gera er elds verði vart innan skólans. Nokkrir nemendur
voru fengnir til að leika það hlutverk að "týnast", vera slasaðir eða þurfa
björgunar við. Reykkafarar þurftur síðan að leita að þeim sem týndir
voru. Rýming á skólahúsnæðinu gekk vel og slökkvilið bæjarins sýndi
góð viðbrögð. Myndir frá æfingunni er að finna á myndasíðu skólans. |
 |
20.nóv
Leikhúsferð
unglingastigsins
 Föstudaginn 17. nóvember skelltu
nemendur og kennarar unglingastigsins sér í Borgarleikhúsið að sjá
gamanleikinn Mein Kampf. Nemendur fengu sérstaklega góðar móttökur við
komuna í leikhúsið því þeim var boðið í skoðunarferð um húsnæðið til að
kynnast starfseminni. Að því loknu tylltu menn sér niður og horfðu á
leikritið Mein Kampf með Berg Ingólfsson í aðalhlutverki.
meira... |
 |
14.-16.nóv
Dagar íslenskrar tungu haldinn í
skólanum

Dagur íslenskrar tungu er haldinn þann 16. nóvember hvert ár og á þeim degi
taka nemendur sér fyrir hendur ýmislegt sem auðgað getur okkar mál. Að
þessu sinni var ákveðið að nemendur skyldu velja sér umfjöllunarefni tengdu
íslenska málinu. Fengu þeir nokkuð frjálsar hendur til þess og voru
hvattir til að vera frumlegir í sínum verkum. Einn dagur var tekinn
frá í skólastarfinu til að finna sér efni til að vinna með (sem að vísu var
viku frá fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar). Síðan var samkeppni
innan hvers bekkjar um það hverjir skyldu taka þátt í lokasýningu fyrir
unglingastigið daginn eftir.
meira |
 |
27. okt
Stíll 2006 Hönnunarkeppni
Þrumunnar og skólans

Hin árlega undankeppni
Stíls, hönnunar- förðunar- og hárgreiðslukeppni SAMFÉS fyrir 8. – 10. bekk
fór fram á Sal Grunnskóla Grindavíkur föstudaginn 27. október og þema
keppninnar var Móðir jörð.
Sex lið tóku þátt og hófst einnar stundar undirbúningur á keppnisdegi
kl.12:00 á palli unglingadeildar. Þar gengu dómarar á milli keppenda,
skoðuðu vinnubækur og fræddust um undirbúningstímabilið og vinnuferlið. Mjög
strangar kröfur voru gerðar til þess að einungis keppendur kæmu einir að
hönnun og allri vinnu á verkefnunum .
Keppnin í ár var hin glæsilegasta í alla staði og auðséð að liðin höfðu lagt
mikla vinnu í verkefnin og voru áhorfendur fjölmargir eins og endranær. Að
þessu sinni stóðu Moldvörpurnar uppi sem sigurvegarar, en liðið skipuðu
Helga Dís 10. P, Rakel Eva 9.E, Sóldís 10. P og Stefanía 10.P sem var módel
hópsins. Vinningsliðið tekur þátt í keppni SAMFÉS í Kópavogi 18. nóvember
2006. Myndir frá keppninni eru á myndasíðu skólans |
 |
20. október
Heimsókn Forseta Íslands
í skólann ásamt Roman Abramovich

Þann 20.október síðastliðinn varð skólinn þess heiðurs aðnjótandi að forseti Íslands hr. Ólafur Ragnar Grímsson heimsótti skólann ásamt föruneyti. Þessi óvænta heimsókn varð mikið gleðiefni fyrir nemendur og starfsfólk skólans. Forsetinn kynnti sér skólastarfið og heilsaði upp á nemendur í kennslustund og barnakór söng Meðal gesta Forsetans í ferðinni var Roman Abramovich ríkisstjóri Chukotka og eigandi enska knattspyrnuliðsins Chelsea.
Myndir frá heimsókninni eru á myndasíðu skólans. |
 |
28. september
Forvarnadagurinn
í 9. bekk

Forvarnardagurinn 28. september 2006
beindist sérstaklega að 9. bekkjar nemendum í öllum grunnskólum landsins,
fólst verkefnið hér í Grindavík í fræðslu, verkefnavinnu með fulltrúum
ungmennafélagsins og útiveru með unglingadeildinni Hafbjörgu en
foreldrafélagið sá sér ekki fært að taka þátt í deginum að þessu sinni.
Átakið var samstarfsverkefni Sambands
íslenskra sveitarfélaga, Íþrótta- og Ólimpíusambands Íslands, Ungmennafélags
Íslands, Bandalags íslenskra skáta, Reykjavíkurborgar, Háskóla Íslands,
Háskólans í Reykjavík og forseta Íslands.
Byggir átakið á niðurstöðum rannsókna
fræðimanna við HÍ og HR. Eins studdi lyfjafyrirtækið Actavís verkefnið í
samræmi við stefnu þess að stuðla að heilbrigðum og hollum lífsháttum.
|
 |
21. september
Yngstu nemendurnir í leik
og starfi

Nú
hefur skólastarfið staðið yfir í u.þ.b. mánuð og nemendur brett upp ermarnar
í náminu og sökkt sér í lærdóminn. Enda er fjölbreytt og skemmtileg vinna
sem þeir inna af hendi þessa dagana sem og ætíð.
1. bekkingar hafa verið til að mynda í umferðarþema, 2. bekkur að fjalla um
árstíðirnar og að vinna með biblíuna ásamt fleiru. Hér gefur að líta
myndir frá þessum áhugasömu nemendum við störf og leik. Eins og sjá má skín
ánægjan úr andlitum þeirra. |
 |
21. september
Umferðarvika hjá 1. bekk

Undanfarna daga hafa nemendur í 1. bekk verið læra um
umferðina s.s. reglur og hættur sem að þeim steðja í umhverfinu. Þau
hafa kynnt sér leiðina í skólann frá heimilinu, gert umferðarljós,
farið í umferðarreglurnar og margt fleira. Að þessu loknu fengu þau
lögregluna í heimsókn til að spjalla við þau um umferðarreglurnar og þær
hættur sem á vegi þeirra geta orðið. Það er aldrei of varlega farið,
sérstaklega þegar skyggja tekur og gangandi vegfarendur eru ekki eins
sýnilegir og í björtu. |
 |
21.september
Bekkjamyndatökur fyrir vefsíðu
skólansNæstu
vikur verða teknar bekkjarmyndir af nemendum til að setja á vefsíðu skólans.
Þessar myndir verða einnig vistaðar með stóru sniði svo að hægt verði fyrir
þá sem vilja að prenta þær út í lit af vefsíðunni. Á morgun föstudaginn 22.
sept. verða teknar myndir af nemendum 1.-4. bekkja. Næstkomandi
föstudag þann 29. sept. verða 5.-7. bekkir í myndatökum og að síðustu þann
6. október verða myndatökur fyrir 8.-10. bekkinga.
Fleiri myndir eru á myndasíðu skólans |
 |
20. september
Lundapysja í heimsókn

Líf og fjör hefur verið
í 1.bekk undanfarið og börnin verið dugleg að aðlagast nýju umhverfi. Í
vikunni fékk 1.H lundapysju í heimsókn alla leið frá Vestmannaeyjum og vakti
það mikla lukku.
Fleiri myndir eru á myndasíðu skólans |
 |
20. september
Ratleikur á unglingastiginu

Miðvikudaginn 20. september síðastliðinn ákváðu
kennarar á unglingastiginu að nýta sér góða veðrið sem heilsaði okkur að
morgni til að virkja nemendur í skemmtilegan ratleik um byggðina hér í
kring. Nemendum á unglingastiginu var blandað milli árganga og myndaðir um
12 manna hópar sem áttu að leysa þrautir á tíma með því að svara verkefnum á
hverri stöð Að því loknu þurftu þau að finna út úr orðarugli í
lestexta hvar næstu stöð væri að finna. Alls voru þetta 7 stöðvar á
víð og dreif um svæðið. Til að ýta undir samvinnu og samheldni þurfti
hópurinn að halda í band allan tímann sem ratleikurinn tók. Ef einhver
sleppti bandinu var bætt 5 mínútum í hvert skipti við þann tíma sem tók að
ljúka leiknum.
Fleiri myndir eru á myndasíðu skólans |
|
|
 |
|
1. september
Leikjadagur yngstu nemendanna

Föstudaginn
1. sept. örkuðu nemendur og kennarar á yngsta stiginu út á rollutún, austan
við tjaldstæðið, til þess að fara saman í leiki. Þeir hittu svo
sannarlega á rétta daginn til að halda leikjadaginn þar sem sól skein í
heiði og hlýtt var í veðri. Kennarar höfðu skipulagt daginn með það
fyrir augum að nemendur gætu prófað sem flesta leiki sem í boði var.
Þeir skiptu svæðinu í leikjastöðvar þar sem margar krefjandi þrautirnar voru
til að sigrast á. Skemmtu allir sér konunglega og nutu sigranna sinna
(hvort sem voru stórir eða smáir) því markmiðið var að nemendur gerðu sitt
besta og kepptu við sjálfa sig. Velheppnaður dagur sem mun eflaust lifa í
minningu margra þennan skólaveturinn. |
 |
18. september
Árstíðirnar í 2. bekk

Krakkarnir í 2. bekk
hafa undanfarna daga verið að læra um árstíðirnar, þau skoðuðu meðal annars
hvernig trén breytast eftir árstíðum og eins veðrið. Í framhaldinu voru
gerð veggspjöld þar sem hver árstíð og einkenni hennar komu fram. Þau
skoðuð líka í hvaða mánuði þau ættu afmæli og þá í hvaða árstíð sá mánuður
var. Nú ættu allir að vera margs vísari um árstíðirnar.
Fleiri myndir eru á myndasíðu skólans |
 |
Stuttar
fréttir úr skólalífinu 2009-10
Stuttar
fréttir úr skólalífinu 2008-09
Stuttar fréttir úr skólalífinu
2007-08
Stuttar fréttir úr skólalífinu
2006-07
Stuttar fréttir úr skólalífinu
2005-06
Stuttar fréttir úr skólalífinu
2004-05
|