Stuttar fréttir úr skólalífinu

2007-08

23.maí
4.R heimsækir flutningafyrirtæki

Föstudaginn 9.maí tók Kristján afi Kristjáns Más á móti bekknum en hann rekur flutningafyrirtæki. Á staðnum voru tvö fjórhjól, tvö mótorhjól og stórir flutningabílar. Vakti þetta að vonum mikla lukku og athygli. Ferð þessi  heppnaðist  afar vel.  Voru nemendur alveg frábærir í alla staði, teiknuðu myndir í litlar bækur og nutu þess einnig að skoða náttúruna, sjóinn, fuglana og hestana á leiðinni.  Eins og ljósmyndirnar bera með sér voru nemendur leystir út með súkkulaði og gosi og mæltist það meira en vel fyrir! 

23.maí
Heimsókn frá skólahópi Lautar

Skólahópur leikskólans Lautar heimsótti skólann okkar á dögunum.  Tilgangur heimsóknarinnar er að undirbúa þau fyrir komandi skólagöngu.  Þau fengu svo sannarlega alveg magnaðan leiðsögumann til verksins, því Gunnlaugur skólastjóri gaf sér góðan tíma til að fræða þau um framtíðar skólann sinn.  Það átti vel við það þessu sinni að Gunnlaugur leiddi ungviðið um ganga skólans því eins og öllum er kunnugt mun Gunnlaugur láta af störfum sem skólastjóri nú á hausti komandi.

23.maí
Gestir frá Danmörku

Dagana 31. maí  - 7. júní kemur danskur hópur frá Sundby Friskole á Jótlandi, í heimsókn til Grindavíkur. Samvinna hefur verið milli dönsku kennara og nemenda í 7. bekk. Hópurinn mun dvelja í skólanum og fyrirhugað er að nemendur úr skólanum hitti krakkana eina kvöldstund. Dönsku krakkarnir ætla að skoða sig um í Grindavík og nágrenni.

20.maí
Rauði krossinn gefur 1. bekkingum hjálma

Grindavíkurdeild Rauða kross Íslands færði þann 5. maí síðastliðinn, öllum nemendum í 1. bekk reiðhjólahjálma að gjöf. Framtak þetta er árvisst af hálfu deildarinnar og miðar að því að auka öryggi nemenda í umferðinni. Það var Guðfinna Bogadóttir formaður deildarinnar sem afhenti hjálmana. Þetta er svo sannarlega frábært framtak og á Rauði Krossinn bestu þakkir skilið.  Hér fyrir neðan má sjá myndir sem teknar voru við þetta tækifæri.  Fleiri myndir eru á vefsíðu skólans.

20.maí
Göngudagur Mörtu

Þann 29. apríl hefði okkar ástkæri samstarfsmaður, Marta Guðmundsdóttir átt afmæli.  Af því tilefni ákváðu nemendur og starfsmenn skólans að heiðra minningu hennar með göngudegi í hennar anda. 
Eins og flestum er í fersku minni var Marta mikill talsmaður heilsuræktar og heilbrigðs lífernis og vann sér það til frægðar að ganga yfir Grænlandsjökul síðastliðið vor til styrktar baráttu gegn krabbameini.  Með það að leiðarljósi gengu nemendur og starfsmenn til góðs á skólatíma. Sem dæmi um göngutíma bekkjanna má sjá hér að neðan.

2. og 4. bekkur lögðu af stað kl. 08:15

1. og 3. bekkur lögðu af stað kl. 08:30

Genginn var eftirfarandi hringur:
Upp Víkurbraut að Landsbankanum, niður Ránargötu að Seljabót. Vestur Seljabót, Garðsveg og Sjávarbraut út í Bót.  Þar er snúið til baka og Vesturbrautin gengin og upp Víkurbraut að skólanum. Allir gengu sama hringinn og sömu leið.

¨ 5. - 7. bekkur lagði af stað kl. 09:35 og gekk umhverfis Þorbjörninn

¨ Unglingastigið gekk niður með höfninni og út í Bót.

Veðurguðirnir voru okkur ekki hliðhollir þennan daginn þó sólin skini. Hávaðarok var svo erfitt reyndist að fóta sig.  En nemendur létu það ekki á sig fá og gengu af miklum þrótti.  Myndir frá deginum eru á vefsíðu skólans.

16.maí
Danskur gestakennari

Náðst hefur góður árangur, mikil jákvæðni og áhugi fyrir dönsku meðal nemenda 7. bekkja. Nemendurnir vinna að mestu leyti án námsbóka og fer kennslan mikið fram í gegnum leik og munnlega tjáningu. Lokaverkefni í dönsku í 7. bekk felst í því að nemendur fjalli um sig sjálf. Verkefnin voru fjölbreytileg og mjög vel unnin.

Karen Jensen gestakennari í dönsku var viðstödd kynningar nemendanna og sagði hún þetta vera einsdæmi í þeim átta skólum sem hún hefur heimsótt á Íslandi. Að sjálfsögðu erum við mjög stolt af krökkunum.  Karen hefur verið gestakennari undanfarið ár í Reykjanesbæ og í samstarfi við bæjaryfirvöld var hún fengin til liðs við skólann okkar í nokkrar vikur.  Hún tók m.a. að sér kennslu á mið- unglingastigi ásamt því að kynna kennsluhugmyndir sem áhersla er lögð á í Danmörku.

28.apríl
Göngudagur Mörtu 29. apríl

Á morgun 29. apríl hefði okkar ástkæri samstarfsmaður, Marta Guðmundsdóttir átt afmæli.  Af því tilefni hafa starfsmenn skólans ákveðið að heiðra minningu hennar með göngudegi meðal nemenda og kennara. 
Eins og flestum er í fersku minni var Marta mikill talsmaður heilsuræktar og heilbrigðs lífernis og vann sér það til frægðar að ganga yfir Grænlandsjökul síðastliðið vor til styrktar baráttu gegn krabbameini.  Með það að leiðarljósi hefur verið ákveðið að nemendur gangi til góðs á skólatíma. Sem dæmi um göngutíma bekkjanna má sjá hér að neðan.

  • 2. og 4. bekkur leggja af stað kl. 08:15

  • 1. og 3. bekkur leggja af stað kl. 08:30

Kennarar nemenda í 3. og 4. bekk fela þeim að leiða yngri nemanda /nemendur ( þeir eru hópstjórar )

Genginn verður hringur: Upp Víkurbraut að Landsbankanum, niður Ránargötu að Seljabót. Vestur Seljabót, Garðsveg og Sjávarbraut út í Bót.  Þar er snúið til baka og Vesturbrautin gengin og upp Víkurbraut að skólanum. Allir ganga sama hringinn og sömu leið.

  • 5. - 7. bekkur leggja af stað kl. 09:35 og gengur umhverfis Þorbjörninn

 

18.apríl
Meistarakokkar framtíðarinnar

Fjórir nemendur frá Grunnskóla Grindavíkur fóru á Kokkakeppni grunnskólana sem haldin var í Hótel og Matvælaskólanum í Kópavogi 12 apríl sl. það voru þau Jón Unnar Viktorsson, Jónína Hildur Grímsdóttir, Steinunn Helga Hallsdóttir og Ásta Jóhanna Styff, sem öll eru í 9. bekk. Þau voru með  pastarétt stangveiðimannsins.  

Keppnin var hin  glæsilegasta og keppendurnir okkar lögðu sig mikið fram en því miður komust þau ekki í verlauna sæti. Hægt er að skoða myndir og uppskriftir á www.kokkakeppni.is

4.apríl
Tónlist fyrir alla þann 23.apríl

Miðvikudaginn 23 apríl munum við fá tónlistarfólk í heimsókn. Um er að ræða verkefni sem kallast
„syngjandi skóli“ og er þannig uppsett að nemendur veða búnir að fá texta af blöðum og geisladisk með undirspili sem þeir nota til þess að æfa sig. Sérstök lög eru fyrir yngri nemendur og önnur fyrir þau eldri. Hver hópur með 3-4 lög. Hópunum munu síðan verða blandað saman á tónleikunum og syngja þeir hver fyrir annan (allir mega reyndar taka þátt). Alls verða því tónleikarnir þrír. Tónlistarmenn sem koma verða:

Pálmi Sigurhjartarson - hljómborð (Sniglabandið) 
Jón Rafnsson - bassi (Guitar Islancio, trio Björns Thoroddsen)
Jóhann Hjörleifsson - trommur (Sálin hans Jóns míns, Stórsveit Reykjavíkur, Tríó Björns Thoroddsen)

14.mars
Stóra upplestrarkeppnin

Hin árlega undankeppni Stóru upplestrarkeppninnar fer fram hér í skólanum fimmtudaginn 27. mars á skólatíma.  Lokahátíðin fyrir Grindavík, Garð og Voga fer fram hér í skólanum fimmtudaginn 10. apríl kl. 17.00. Foreldrar og forráðamenn eru endilega hvattir til að mæta.

Páll Óskar á árshátíðarballinu

Hin árlega árshátíð verður þriðjudaginn 4. mars næstkomandi. Dagurinn byrjar á leikritinu ,,Hin fjögur fræknu“ sem Bergur Þór Ingólfsson leikstýrir og eru krakkarnir komnir á fullt skrið við æfingar og annan undirbúning fyrir sýninguna. Eftir frumsýningu verður svo gamla góða ballið, en í þetta skipti verður það haldið á sal skólans, en það hefur verið í Festi undanfarin ár. Páll Óskar sér um að halda uppi stuðinu!!!
Ballið er fyrir nemendur í 5.-10. bekkjum skólans. Sjá nánar með því að smella hér.

Kveðja nemendaráð

8. feb 2008
Ólag á símkerfinu

Við biðjumst velvirðingar á því hve erfitt hefur verið að ná sambandi við skólann undanfarna daga.  Það var verið að taka í notkun nýtt símkerfi og vonumst við til að byrjunarörðugleikarnir séu að baki.  Við viljum einnig ítreka það að hægt er tilkynna forföll á vefsíðu skólans.

8. feb 2008
Leikstjóri ráðinn fyrir árshátíðarleikrit unglingadeildarinnar
 

Ráðinn hefur verið leikstjóri vegna árshátíðar skólans sem verður í mars. Leikstjórinn heitir Bergur Þór Ingólfsson. Hann  hefur þegar hafið æfingar með nemendum.

8. feb 2008
Stærðfræðikeppni grunnskólanna fellur niður

Hin árlega stærðfræðikeppni sem haldin hefur verið fyrir nemendur á Suðurnesjunum fellur niður þetta árið.  Ástæðan er að þeir kennarar, frá Fjölbrautarskólanum, sem séð hafa um keppnina hafa ekki treyst sér til þess halda utan um hana að svo komnu máli.

8. feb 2008
Skipulags- og starfsdagur í skólanum

Mánudaginn 11. febrúar verður skipulags- og starfsdagur í skólanum.
Nemendur sækja ekki skóla á skipulags– og starfsdögum.

7. feb 2008
Foreldrafélag Grunnskólans

Stjórn Foreldrafélags Grunnskóla Grindavíkur óskar eftir áhugasömu foreldri í stjórnina með okkur en einn mann vantar.   Mjög skemmtilegt starf.  Áhugasamir hafi samband við Petru Rós í síma 869-5570.

Stjórnin

Skólahreysti 2008

 

Fimmtudagurinn 31.janúar kepptum við í Skólahreysti sem var haldinn í Smáranum í Kópavogi.  Þeir sem kepptu fyrir okkar skóla voru: Sara(armbeygjur og hreystigreip), Sandra(hraðabraut), Steinar(dýfur og upphífingar) og Hreinn(hraðabraut). Keppnin gekk vel í alla staði og má þess geta að Sara Hrund vann sína grein í hreystigreip og enduðu við í heild sinni í 7.sæti.
Margir stuðningsmenn komu og studdu þennan glæsilega hóp og má segja að stuðningur þeirra hafi verið mjög mikilvægur.
Einnig viljum við minna á það að keppnin er sýnd á Skjáeinum þann 12.feb. n.k.

Þökkum fyrir okkur!
Kveðja,
Íþróttaráð
Vegna árshátíðarleikrits
Til nemenda/kennara/foreldra/íþróttaþjálfara o.fl.

Nú hefur grunnskólinn gengið frá ráðningu Bergs Þórs Ingólfssonar leikstjóra fyrir árshátíðarleikritið sem mun verða frumsýnt þriðjudaginn 4. mars n.k. 
Leiklistarnámskeið hefur þegar farið fram undir styrkri stjórns Víðis Guðmundssonar og er ekki að efa að einhverjir úr þeim hópi taki þátt í árshátíðarundirbúningnum.
Fyrsti fundur með leikstjóra verður fimmtudaginn 24.janúar kl. 14.00 – 17.00 á sal skólans.  Næsti fundur verður síðan föstudaginn 25.janúar kl. 14.15 – 16.15.
Fljótlega mun leikstjóri afhenda æfingaáætlun fyrir tímabilið. 
Lesa tilkynninguna í heild sinni.- smellið hér

Kennsla fellur niður vegna ófærðar og veðurs

Foreldrar/forráðamenn athugið!!!

Skólahald fellur niður í dag hjá nemendum allra skólastiga vegna veðurs og færðar.

Skólastjóri

28.des
Breytt verð á skólamáltíðum

Eftir áramót mun nýtt verð á máltíðum taka gildi í Grunnskóla Grindavíkur, en þá mun hver máltíð kosta 220 kr.

Skólahald hefst  að nýju að loknu jólafríi mánudaginn þann 7. janúar kl.10:00

16. nóv
Fatasund í 4. - 10. bekk

Í vikunni 19. -24. nóvember er fatasund hjá 4-10.bekk og eiga þau að mæta í íþróttafötum utan yfir sundfötin. Þetta er hluti af sundkennslunni hjá þeim og því mikilvægt að allir mæti með föt. Það má ekki koma í gallabuxum, flíspeysu eða renndri peysu. Reyna koma í íþróttafötum.

16. nóv
Aðalfundur Foreldrafélags Grunnskóla Grindavíkur

Aðalfundur Foreldrafélags Grunnskólans verður haldinn á sal skólans þriðjudaginn 20. nóv. Kl. 20:00.  Foreldrar og forráðamenn eru hvattir til að fjölmenna á fundinn.

15.nóv 2007
Forvarnir  -  fyrirlestur
Forvarnarverkefnið LUNDUR

Fimmtudaginn 15. nóvember voru nemendur unglingadeildar boðaðir á sal skólans til að hlýða og ræða við góða gesti sem lagt höfðu leið sína til Grindavíkur.  Þau voru mætt til að fræða þá um afleiðingar neyslu áfengis og vímuefna á þau sjálf og aðstandendur þeirra og fleiri. Í forsvari fyrir verkefnið er Erlingur Jónsson og á hann mikið þakklæti skilið fyrir framtak sitt.  Hann mætti í skólann ásamt tveimur einstaklingum sem fallið höfðu djúpt í pytt eiturlyfjanna.  Þau ræddu við nemendur og lýstu fyrir þeim hvernig líf þeirra varð er þau höfðu ánetjast eiturlyfjunum.  Lýsingar þeirra voru mjög myndrænar og oft á tíðum óhugnanlegar.  Þau ræddu um fortíð sína og framtíð ásamt því að þau þurfi stanslaust að vera á varðbergi gagnvart fíkn sinni um alla ókomna framtíð.  Forvarnarverkefnið skartar eigin vefsíðu og eru foreldrar/forráðamenn og nemendur hvattir til að kynna sér það efni sem á síðunni er:  Slóðinn er http://forvarnir.bloggar.is/ 

16. maí
Dagur íslenskrar tungu - Fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar

Á morgun föstudag eru tvöhundruð ár frá fæðingu Jónasar Hallgrímssonar ljóðskálds.  Að venju hefur þessi dagur verið dagur íslenskrar tungu og Grunnskóli Grindavíkur leggur sitt af mörkum til þessa dags með ýmsum verkefnum og uppákomum. Meðal þess sem verður á boðstólnum eru kvikmyndasýningar,  upplestur, ljóðalestur ofl.  Á þessum degi hefst Upplestrarkeppnin með formlegum hætti.

15. maí
Hönnunarkeppnin Stíll 2007 í skólanum

Á morgun fimmtudag verður hönnunarkeppnin Stíll haldin í skólanum á vegum Félagsmiðstöðvarinnar.  Keppnin verður haldin í hátíðarsal skólans um kvöldið og hefst kl. 21:00 stundvíslega. Undirbúningur hefst kl. 20:00

14. nóv 2007
Tveir „ógeðslega frábærir“ rithöfundar á ferð

Miðvikudaginn  14. nóvember síðastliðinn kíktu tveir landsfrægir rithöfundar á nemendur unglingastigsins og lásu fyrir þá úr verkum sínum.  Þetta voru þeir Einar Már Guðmundsson og Einar Kárason sem m.a. skrifuðu Þar sem djöflaeyjan rís og Englar alheimsins.  Að upplestrinum loknum ræddu þeir við nemendur um verk sín, skrif og hvernig það væri að vera rithöfundur.  Sannarlega tveir „ógeðslega frábærir“ á ferð.  Í vikunni fyrir heimsóknina höfðu nemendur horft á kvikmyndirnar Þar sem djöflaeyjan rís og Bíódagar en þessar kvikmyndir voru gerðar eftir skáldsögum þeirra.  Myndir frá heimsókninni er á myndasíðu skólans

5. nóv 2007
Foreldraviðtöl og vitnisburður dagana 13.-15. nóvember - Samskiptavika


Framundan eru foreldraviðtöl og vitnisburður í skólanum.  Vitnisburðarvikan verður dagana 13.-15. nóvember næstkomandi.  Öll foreldraviðtöl verða að loknum skóladegi og hefjast um 16:00 þessa dagana.  Námsráðgjafi, stjórnendur og sérgreinakennarar verða einnig til viðtals þessa dagana. 
Hér má sjá viðtalstíma nemenda sem þeim hefur verið úthlutað - smelltu hér

24.sept 2007
Kennarar úr Vík í Mýrdal kynna sér uppbyggingarstefnuna í skólanum

Heimsóknir kennara alls staðar af landinu í skólann okkar hafa aukist til mikilla muna að undanförnu.  Þegar hafa kennara frá tveimur skólum og kennarar frá Finnlandi komið til að kynna sér nánar uppbyggingarstefnuna (uppbygging til ábyrgðar) sem skólinn hefur innleitt í starfsemi sína á undanförnum árum.  Að kynningu lokinni fengu gestirnir sér næringu og spjölluðu við kennara og starfsfólk skólans um allt sem viðkom nýfenginni reynslu þeirra úr heimsókninni.  Fleiri myndir eru á myndasíðu skólans.

21.sept 2007
Umferðarvika í skólanum - Lögreglan heimsækir miðstigið

Í tilefni evrópskar umferðarviku höfum við í skólanum unnið ýmis verkefni varðandi umferða. Einnig fengum við heimsókn lögreglumanns, Kristjáns Geirssonar, sem ræddi við nemendur á miðstigi.
Hann ræddi við krakkana um mikilvægi þess að vera vakandi í umferðinni. Það væri ekki allt sem sýndist í umferðinni og maður getur ekki treyst því að hinir í umferðinni taki eftir öllu.
Kristján lagði einnig áherslu á öryggisbúnað sem á að nota við hjólreiðar og það væri algjör nauðsyn að nota hjálma. Reyndar væru lög um það að það ætti að nota þá við hjólreiðar. Hjólin verði að vera í lagi, hemlabúnaður, bjalla og helst ljós í góðu lagi. Best væri þó að fara eftir skynseminni og foreldrar eiga að sjá til þess að þessi mál væru í lagi.
Það kom í ljós að krakkarnir voru vel meðvitaðir um hvað umferðamerkin segja manni og hann hrósaði þeim mjög fyrir hvað þeir væru vel með á nótunum og hvatti þau til að halda áfram að vera varkár og aðgætin í umferðinni.

21. sept 2007
Knattspyrnudeild UMFG býður nemendum á leikinn gegn Reyni Sandgerði

Föstudaginn 21. september síðastliðinn mættu nokkrir leikmenn Grindavíkurliðsins í bekkina og búðu nemendum á leikinn gegn Reyni Sandgerði laugardaginn 22. sept.  Paul McShane, Scott Ramsey og Eysteinn Húni Hauksson ræddu við nemendur og hvöttu þá til að sýna stuðning sinn í verki og mnæta á leikinn til að hvetja Grindavíkurliðið í baráttunni um laust úrvalsdeildarsæti.

21.sept 2007
Finnskir kennarar kynna sér uppbyggingarstefnuna í skólanum

Nokkrir kennarar frá Finnlandi litu í skólann okkar fimmtudaginn 20. sept.síðastliðinn, í heimsókn til okkar í skólann.  Megintilgangurinn með heimsókninni var að kynna sér nánar uppbyggingarstefnuna (uppbygging til ábyrgðar) sem skólinn hefur innleitt í starfsemi sína á undanförnum árum. Þeir eru hér á landi vegna verkefnis sem nefnist Nordplus og  fengu þeir einnig innsýn inn í kennsluhætti og sáu með eigin augum hvernig uppbyggingarstefnan væri samofin öllu inntaki skólastarfsins, Ellert Sig Magnússon og María Eir leiddu þau í sannleikann allt það sem skólinn hefur verið að gera í þessum efnum.  

19.sept 2007
Björgunarsveitin Þorbjörn í heimsókn í  9. og 10. bekkina

Þann 19. september síðastliðinn komu nokkrir gamlir nemendur í heimsókn í skólann.  Tilgangurinn með heimsókninni var að kynna fyrir nemendum 9. og 10. bekkja, starfsemi Björgunarsveitarinnar Þorbjarnar.  N'u er svo komið að starfið í björgunarsveitinni er metið sem valgrein og þar með til eininga í unglingadeildinni.

14.sept 2007
Gönguferð miðstigsins - Hópsneshringurinn genginn

Þann 14.sept ákváðu nemendur og kennarar að njóta haustblíðunnar og fá sér gönguferð um nágrenni Grindavíkur. Ákveðið var að ganga Hópsneshringinn í sól og blíðu.  Fleiri myndir eru á myndasíðu skólans.

10. sept 2007
Tæ-kvon-do kynning í íþróttum

Fyrir stuttu fengu nemendur skólans í heimsókn góða gesti í íþróttatíma.  Tilefnið var að kynna fyrir þeim íþróttagreinina Tækvondo.  Margir gengu vasklega fram í náminu og börðust af hugdirfsku og mikilli fimi.  Þess ber að geta að allt var þó í hinu mesta bróðerni og engan sakaði í æfingunum. Hér eru myndir frá kynningunni.  Fleiri myndir eru á vefsíðu skólans

14.sept 2007
Kennarar Lágafellsskóla kynna sér uppbyggingarstefnuna í skólanum

Kennarar af elsta stigi í Lágafellsskóla, Mosfellsbæ komu, föstudaginn 14. sept síðastliðinn, í heimsókn til okkar í skólann.  Megintilgangurinn með heimsókninni var að kynna sér nánar uppbyggingarstefnuna (uppbygging til ábyrgðar) sem skólinn hefur innleitt í starfsemi sína á undanförnum árum.  Fleiri myndir eru á vefsíðu skólans.

31.ágúst 2007
Berjatínsla í unglingadeildinni

Þann 31.ágúst tóku kennarar og nemendur á unglingastiginu sig til, slepptu námsbókunum og héldu út í náttúruna til berjatínslu. Tilbreytingin var liður í heilsuræktarátaki sem verið hefur fastur punktur í skólastarfinu síðustu tvö árin. Átakið hefur verið fastur þáttur í skólastarfinu undanfarin ár og þess vegna verður sama uppi á teningnum þetta árið og haldið áfram með að sinna þessum líkams– og útvistarþætti. Veðrið var okkur nokkuð hliðhollt, logn, milt og skýjað. Myndir frá berjaferðinni eru á myndasíðu skólans.

Stuttar fréttir úr skólalífinu 2009-10
Stuttar fréttir úr skólalífinu 2008-09
Stuttar fréttir úr skólalífinu 2007-08

Stuttar fréttir úr skólalífinu 2006-07
Stuttar fréttir úr skólalífinu 2005-06
Stuttar fréttir úr skólalífinu 2004-05


 

   
         
         
         
   
Grunnskóli Grindavíkur Ásabraut 2 S: 420-1150 skolinn@grindavik.is