| |
|
|
Stuttar fréttir úr
skólalífinu
2008-09 |
|
|
17.apríl
Íslensku menntaverðlaunin
Með póstkorti þessu viljum við minna á Íslensku menntaverðlaunin. Núna í
vor verða þau afhent í fimmta sinn.
Verðlaun þessi eru sannkölluð þjóðarverðlaun því hver og einn getur sent
inn sínar tilnefningar. Við höfum flest skoðanir á því hvað sé góður
kennari, frábært námsefni ellegar góður skóli. Þess vegna hvetjum við
ykkur foreldrar góðir til að taka þátt í þessum tilnefningum.
Hér má sjá kynninguna frá Íslensku menntaverðlaununum eða með því
að smella á www.forseti.is .
Verðlaunaflokkar Íslensku menntaverðlaunanna eru eftirfarandi: |
 |
1. apríl
Úrslit í kokkakeppni
grunnskólans
Í
gær, þriðjudaginn 31. mars var haldin kokkakeppni Grsk. Grindavíkur í
heimilisfræðistofu skólans. Samtals tóku 6 einstaklingar þátt í
keppninni. Nemendur og starfsfólk skólans fékk að reyna með sér við
smökkun á réttunum og dæma um árangurinn. Það sáust fagleg handbrögð
og fagurlega skreyttir diskar voru töfraðir fram af keppendum. Ekki
spillti fyrir að þeir reyndust einnig ljúffengir og léku um bragðlaukana.
Að lokum stóðu 3 nemendur uppi sem sigurvegarar og munu mynda kokkasveit
Grunnskóla Grindavíkur í árlegri kokkakeppni grunnskólanna sem haldin
verður í vor. Sveitina skipa Hanna 10.P, Jónína 10.K og Steinunn í
10.P. Til hamingju stúlkur. Fleiri myndir eru á myndasíðu
skólans. |
 |
1. apríl
Aukasýning
á árshátíðarleikritinu Ýkt kominn yfir þig í kvöld,
miðvikudaginn 1. apríl kl. 20:00

Vegna fjölda áskoranna hefur verið
ákveðið að bæta við einni aukasýningu á árshátíðarleikriti
unglingadeildarinnar. Sýningin verður í kvöld, miðvikudagskvöldið 1.
apríl og hefst hún kl. 20:00 |
 |
1. apríl
Fern verðlaun í Stærfræðikeppni
Suðurnesja

Frábær árangur
náðist í stærðfræðikeppni Grunnskóla á Suðurnesjum. Samtals
fengu 4 einstaklingar verðlaun fyrir frábæran árangur. Þau sem fengu
verðlaun voru eftirfarandi nemendur. Gullverðlaun fengu þau
Ingibjörg Yrsa 9.G og Guðjón 8.V; silfurverðlaun fékk Steinar í 10.K
og Gunnar Þorsteins 9.G hlaut bronsverðlaun. Við megum svo
sannarlega vera stolt yfir árangri okkar nemenda því samtals tóku 14
nemendur þátt í keppninni. Af þessum fjórtán náðu 7 að komast í tíu
efstu sætin í 8.-10. bekk. og þar af náðu 4 nemendur verðlaunasæti.
Á myndina vantar Sólon í 8.V, Steinar, Gunnar Marel og Bjarna í 10.K (þeir
voru í PISA könnun þegar myndin var tekin). |
 |
27. mars
Góður
árangur í stærðfræðikeppni grsk. Suðurnesja
Frábær árangur
náðist í stærðfræðikeppni grsk. Suðurnesja. Þeir sem þátt taka í
keppninni eru nemendur 8.-10. bekkja allra grunnskóla á Suðurnesjum.
Tilkynnt var í dag hverjir hefðu lent í 10 efstu sætum hvers árgangs og
kom í ljós af þessum þremur árgöngum þá á Grunnskóli Grindavíkur hvorki
fleiri né færri en 7 einstaklinga. Það er 23,3% af efstu 10 sætum
allra hópa. Það eitt og sér er til marks um að vel er búið að
stærðfræðikennslu okkar skóla. Nemendur, til hamingju með glæsilegan
árangur. Úrslit um sæti verða tilkynnt síðar. |
 |
24. mars
Árshátíðardansleikur eldri nemenda
Árshátíðardansleikur nemenda 5.-10. bekkja var haldinn þriðjudaginn 24. mars hér í skólanum. Það voru engir aukvissar sem héldu uppi fjörinu. Á móti sól með Magna í farabroddi sá um fjörið. Fyrr um kvöldið keyrði skólahljómsveitin Bigalow upp fjörið. Það var gaman að sjá hversu margir lögðu ómælda vinnu á sig til að gera umgjörð dansleiksins sem glæsilegasta og nemendur skörtuðu sínu fínasta pússi. Frábær endir á frábærum degi. Allir nemendur eiga sannarlega hrós skilið fyrir óaðfinnanlega framkomu og heilbrigða skemmtun. |
 |
24. mars
Árshátíðarleikritið „Ýkt kominn yfir þig“
Árshátíð unglingastigsins hófst snemma dags þann 24. mars með sýningu á leikritinu „Ég er ýkt kominn yfir þig“. Undanfarnar vikur hafa nemendur unglingadeildar æft af kappi fyrir árshátíðina enda var útkoman þeim til mikils sóma. Síðar um kvöldið skemmtu nemendur 5.-10. bekkja sér á dansleik með hljómsveitinni Á móti sól þar sem Magni var í fararbroddi. Hér eru myndir frá árshátíðarleikritinu. Smelltu á myndirnar til að stækka. |
 |
17. mars
Árshátíð
miðstigsins
Þriðjudaginn 17. mars
síðastliðinn héldu nemendur 5.-7. bekkja árshátíð sína með pompi og prakt.
Undanfarnar vikur höfðu nemendur lagt mikla vinnu á sig við að semja og
æfa skemmtiatriði, hanna leikmyndir og búninga til að hátíðin yrði sem
glæsilegust. Skemmtiatriði voru af ýmsum toga, allt frá hljóðfæraeinleik
að glefsum úr frægum söngleikjum. Það mátti sjá einbeitingu skína úr
andlitum nemendanna þegar þeir léku sín hlutverk af hjartans list.
Húsfyllir varð og þeir gestir sem á horfðu, skemmtu sér konunglega.
Myndir eru á myndasíðu skólans. |
 |
13. mars
Nýr upplýsingaskjár í
skólanum
Nýr upplýsingaskjár hefur verið
tekinn í notkun í skólanum. Skjárinn er á veggnum í andyri
aðalinngangs skólans. Fyrirhugað er að þar muni birtast allar helstu
tilkynningar frá skrifstofu skólans, s.s. forföll, matseðill, ýmsir
atburðir í tenglsum við skólastarfið. |
 |
|
13. mars
Árshátíð miðstigs
Grunnskóla Grindavíkur

Árshátíðin
verður þriðjudaginn
17. mars kl. 14.00. Allir bekkir eru með atriði og í hléi munu nemendur í
6. bekk ásamt foreldrum selja kaffi og vöfflur. Verð á vöfflu og drykk er
500 krónur. Á milli atriða verða tónlistaratriði frá Tónlistarskóla
Grindavíkur.
Á árshátíðardaginn er engin kennsla hjá nemendum, þeir mæta á sína
árshátíð kl. 14.00. Foreldrar eru velkomnir á sýningu barna sinna. |
 |
12. mars
Verslunarskólinn kynnir Stardust
Fimmtudaginn
12. mars, fengu
nemendur á unglingastiginu heimsókn frá nokkrum nemendum Verslunarskóla
Íslands. Tilefnið var að nemendafélag Verslunarskólans hefur tekið til
sýningar söngleikinn Stardust og komu þeir gagngert til að sýna brot úr
söngleiknum og ræða við nemendur. Það var slegið á létta strengi og þeir
sem stóðu að kynningunni náðu hópnum vel á skrið með allskyns bröndurum og
hljóðum. Þess má geta að einn gamall nemdandi héðan úr skólanum, Jón Ágúst
Eyjólfsson, tekur þátt í sýningunni eins og undanfarin ár. Hann á bróður á
unglingstiginu og einn kennari skólans er systir hans, Guðrún Sædís sem
kennir á unglingastiginu. Hún fékk aðeins að finna fyrir því og fékk
nokkur skot frá Jóni Ágústi og félaga. Allt var þó í gríni gert og gott
að vita að nemendur og kennarar hafi góðan húmor fyrir sjálfum sér.
|
 |
6.mars
Síðbúin konudagsveisla í 7.
bekkjunum

Í dag 6. mars var haldin síðbúin
konudagsveisla í 7. bekkjunum. Fyrr í vetur buðu stúlkurnar í 7. bekkjunum drengjunum til stórveislu en í dag var komið að drengjunum að bjóða til veislu. Þær konur sem kenndu þeim ásamt aðstoðarskólastjóra og stuðningsfulltrúum var að sjálfsögðu einnig boðið. Dagana áður höfðu drengirnir boðið þeim á formlegan hátt með glæsilegu, heimatilbúnu boðskorti . Drengjunum til aðstoðar voru
þeir Páll skólastjóri og Ellert kennari. Þeir tóku sig vel út með svunturnar eins og sjá má á einhverjum myndanna. Bornir voru fram dýrindis réttir af öllum toga og létu stúlkurnar þjóna sér til borðs og nutu þess að vera stjanað við. Þeir eiga svo sannarlega mikið hrós skilið fyrir frábæra þjónustulund og magnaða rétti. Hér eru myndir frá veislunni. Þess má geta að bekkjafélagi þeirra Frank Bergmann er þessa dagana staddur í Svíþjóð í læknismeðferð og hann lét sig samt ekki vanta og var í tölvusambandi með aðstoð Skype við sína félaga á meðan veislunni stóð. |
 |
4.mars
Heimsókn 9. bekkja í FS

Miðvikudaginn 4. mars fóru nemendur 9. bekkja í heimsókn í Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Tilgangur með heimsókninni var að kynna sér skólann og hvað hann hefur upp á að bjóða varðandi framhaldsnám. Á móti okkur tóku námsráðgjafar skólans og gengu með okkur um allan skólann og fengum við að kíkja inn í kennslustundir í öllum helstu námsgreinunum. Að endingu fórum við inni í fyrirlestrarsal skólans og fengum kynningu á því hvernig einingakerfið er byggt upp og hvaða námsleiðir eru í boði. Því næst konu nemendur í stjórn Nemendafélags FS og kynntu fyrir krökkunum allt það helsta sem varðar félagslíf og skemmtun. Heimsóknin var mjög ánægjuleg fyrir nemendur og eflaust náði að opna þann heims sem fyrir mörgum þessara nemenda liggur í FS. Við viljum nota tækifærið og þakka fyrir góðar mótttökur og skilmerkilegar kynningar. |
 |
3.mars
Úrslit í Stóru Upplestrarkepninni

Þann 3. mars var úrslitakeppni Grunnskóla Grindavíkur í Stóru Upplestrarkeppninni. Samtals höfðu 15 nemendur komist áfram, en því miður var einn fjarverandi sökum veikinda. Hinir 14 kepptu því með sér við upplestur á bókmenntaverki og völdu ljóði. Það var virkilega gaman að hlusta á lestur nemendanna sem lögðu hug og hjarta í verkið. Að miklu var að keppa þar sem 5 efstu nemendurnir í úrslitunum kæmust í úrslitakeppnina milli nokkurra skóla hér á Reykjanesinu, en þriggja manna dómnefnd sá um að dæma keppendur. Dómnefndina skipuðu þær Valdís Kristinsdóttir, Kristín Mogensen og Ásrún Kristinsdóttir. Þær komust að niðurstöðu um fimm einstaklinga. Þeir sem urðu efstir í keppninni hér í skólanum voru: Bjarki Þór Ívarsson, Magnús Már Ellertsson, Lárus Guðmundsson, Páll Erlingur Pálsson og Lára Lind Jakobsdóttir. TIl hamingju með árangurinn. Þeir sem ekki komust áfram eiga einnig mikið hrós skilið fyrir góðan lestur og eru menn sammála um að nemendur hafi náð miklum framförum á þessu sviði í vetur.
Myndir frá keppninni er á myndasíðu skólans. |
 |
27. feb

10.P
sigraði í spurningakeppni unglingastigsins
Úrslitaviðureignin var á milli 10. bekkjanna á föstudagsmorgun 27. febrúar. Það var frábært að sjá hversu mikið keppendur og stuðningsmenn liðanna höfðu lagt á sig til að gera keppnina sem glæsilegasta. 10.K var allur íklæddur rauðum lit en 10.P klædd grænu frá toppi til táar. Innkoma liðanna var mikilfengleg þar sem þau komu inn í salinn með fylgdarliði undir dynjandi tónlist og miklum fangaðarlátum stuðningsmanna. Keppnin varð æsispennandi eins og síðustu viðureignir þetta árið. Svo fór að lokum að 10.P varð hlutskarpari þar sem þau sigruðu með 26 stigum gegn 25. Sannarlega glæsileg keppni og öllum til sóma. |
 |
12. feb
112 dagurinn
Í gær 11. febrúar var 112 dagurinn
haldinn á öllu landinu. Markmiðið með deginum var að kynna
neyðarnúmerið og starfsemi þeirra aðila sem því tengjast. Af því
tilefni heimsótti Ásmundur slökkviliðsstjóri 3. bekkina, en í
nóvember tók 3. bekkur þátt í eldvarnardeginum hér í Grindavík.
(eldvarnardagurinn er haldinn um allt land). Þann dag tóku nemendur
þátt í eldvarnargetraun og Eiríkur Þór nemandi í 3.F varð hlutskarpastur
þeirra. Ásmundur slökkviliðsstjóri spjallaði við nememdur og veitti
afhenti Eiríki verðlaunin. Hér má sjá myndir frá tilefninu. |
|
|
 |
6. feb
Samskiptavika foreldraviðtöl dagana 10.-12.
febrúar
Dagana 10.-12. febrúar verða
foreldraviðtöl og vitnisburður í skólanum. Eins og undanfarin ár
verða þessi foreldraviðtöl að loknum venjubundnum skóladegi hjá nemendum.
Þetta fyrirkomulag hefur hentað mjög vel og góður rómur gerður að því.
Forráðamenn/foreldrar og nemendur eru því boðaðir til viðtals hjá
umsjónarkennara á fyrirfram útgefnum tíma sem
sjá má hér. |
 |
5. feb
112 dagurinn í skólanum
Þennan dag er
markmiðið að kynna neyðarnúmerið og starfsemi aðilanna sem tengjast því.
Viðbragðsaðilar um allt land heimsækja skóla og fræða nemendur um
neyðarnúmerið og starfsemi sína. |
 |
2. feb
Nýtt útlit vefsíðunnar
Síðustu daga hefur
vefsíða skólans verið í endurskoðun og útlitsbreytingar hafa verið gerðar
á henni. Fyrra útlit síðunnar var óbreytt í nokkur ár og því tími
til kominn að gera á henni endurbætur og hanna nýtt útlit til að viðhalda
ferskleika hennar. Skipulag og krækjur eru með sama hætti og á fyrri
útgáfu þannig að lesendur ættu samt sem áður að rata um síðuna.
Einnig hefur myndasíðan tekið breytingum og gerð aðgengilegri við alla
myndaskoðun. Fyrri myndasíður munu verða smátt og smátt yfirfærðar í
nýja umhverfið. |
 |
30. jan
Dagur stærðfræðinnar 6. febrúar
Fyrsta föstudag í febrúar ár hvert er haldinn Dagur stærðfræðinnar og er
það
6. febrúar
að þessu sinni. Þema dagsins í ár er
þríhyrningar.
Á heimasíðuna verður settur inn verkefnabanki undir yfirskriftinni
stærðfræði og þríhyrningar með fjölbreyttum verkefnum fyrir nemendur
grunnskóla og framhaldsskóla.
Líkt og undanfarin ár verður haldin þrautasamkeppni fyrir nemendur í 1. -
10.bekk grunnskóla. Hver bekkur má senda inn eina lausn. Dregið verður úr
réttum lausnum og fá allir bekkir sem senda inn réttar lausnir
viðurkenningarskjal.
Verkefnabankinn og þrautirnar verða aðgengileg á heimasíðu Flatar
http://flotur.ismennt.is/ |
 |
22. jan 2009
Litli íþróttasalur
skólans lokaður
Það
hefur eflaust ekki farið framhjá neinum að litli íþróttasalurinn hér í
skólanum er lokaður. Ástæðan er sú að í byrjun síðustu viku fór að
bera á undarlegri lykt og í framhaldinu var ákveðið að loka salnum á meðan
verið er að rannsaka orsakir. sjá
nánar |
 |
21. jan 2009
Frábær árangur nemenda
í samræmdum prófum í 4. og 7. bekkjum
4.bekkur
|
|
Suðurnes |
Landið |
Reykjavík |
Grindavík |
| Íslenska |
6,2 |
6,4 |
6,5 |
6,54 |
| Stærðfræði |
6,8 |
6,8 |
6,8 |
7,3 |
Ef árangur 4.
bekkinga er borinn saman við landið, Suðurnesin og Reykjavík þá sést
greinilega að Grindvískir nemendur eru fyrir ofan meðaltal þeirra
flokka. Sérstaklega hvað varðar stærðfræðina en þar munar hvorki
meira en 0,5. Í einu orði sagt frábær árangur.
7.bekkur
|
|
Suðurnes |
Landið |
Reykjavík |
Grindavík |
| Íslenska |
6,7 |
7,1 |
7,2 |
7,35 |
| Stærðfræði |
6,1 |
6,5 |
6,7 |
7,54 |
Ef árangur 7.
bekkinga er borinn saman við landið, Suðurnesin og Reykjavík þá sést
greinilega að Grindvískir nemendur eru vel fyrir ofan meðaltal þeirra
flokka í íslensku (um 0,6 hærri en meðaltal skóla á Suðurnesjum.
Í stærðfræðinni munar hvorki meira en 0,8 á Grindavík og Reykjavík, en
1,4 á Grindavík og skólum hér á Suðurnesjum.
Foreldrar, nemendur og starfsfólk skólans
geta glaðst yfir góðum árangri
sinna barna. Til hamingju. |
 |
8. jan 2009
Nemendur í víxl lestri

Þetta eru krakkar sem tóku þátt í
víxlestri (lestrarátaki) 10. nóvember – 17. desember 2008. Þau voru mjög
áhugasöm og dugleg og lásu í 300 mínútur og meira. Mikilvægt er sinna
lestri vel og viðhalda áhuga og árangri Her er mynd frá þessum
atburði. Smelltu á myndina til að stækka. |
 |
17.des. 2008
Lúðrasveit Keflavíkur í heimsókn
Þann 16. desember fengu nemendur skólans Lúðrasveit
Keflavíkur í heimsókn. Heimsóknin er liður í því að vekja áhuga á
lúðrasveitarstarfi hér í Grindavík og í framhaldi af kynningunni að setja
á laggirnar okkar eigin sveit. Tónlistarskólinn hafði veg og vanda
af heimsókninni og í samtali við Ingu skólastjóra er mikill metnaður innan
hans raða að byggja upp metnaðarfulla lúðrasveit sem bæjarbúar geta verið
stoltir af. Í fyrstu var áætlað að kynningin yrði fyrir nemendur
5.-10. bekkja, en áhugi allra bekkja á að mæta var mikill, svo úr varð að
allur skólinn mætti á sal til að hlýða á lúðrasveitina. Eins og sjá
má á myndunum var mjög þröngt um allan hópinn en nemendur létu það ekki á
sig fá, heldur skemmtu sér alveg konunglega.því sveitin spilaði fjölda
slagara sem nemendur þekktu vel. Það var því frábær stemning í
salnum sem létu ánægju sína vel í ljós með lófaklappi og hvatningnarhrópum
í lokin. Vonandi verður þessi heimsókn til þess að nemendur flykkist
í lúðrasveit Grindavíkur. |
 |
14.des. 2008
Sungið fyrir Víðihlíð og leikskólana
Í dag brugðu nemendur unglingastigsins
undir sig betri fætinum og örkuðu á leikskólann Laut (8. bekkur), Krók (9.
bekkur) og Víðihlíð (10. bekkur). Tilgangur ferðarinnar var að syngja
nokkur jólalög, njóta stundar með þeim og létta lund þeirra sem þar
voru. Nemendur voru búnir að æfa um 4 jólalög sem þeir síðan sungu fyrir
krakkana á leikskólanum. Að öllu þessu loknu var nemendum boðið upp á
piparkökur. Sem sagt frábærar móttökur og unglingarnir voru skólanum hreint
út sagt til mikils sóma. |
 |
29.nóv. 2008
Grunnskóli Grindavíkur 60 ára
Afmælishátíð skólans og jólaföndur foreldrafélagsins
Laugardaginn 29. nóvember sló
Grunnskóli til veislu og bauð öllum bæjarbúum til sýningar á verkum sem
nemendur höfðu unnið á þemadögum um skólahald hér í Grindavík og atburðum
úr sögu Grindavíkur. Má þar nefna frá Tyrkjaráninu til Sjóarans
Síkáta. Nemendur gáfu meðal annars út dagblað og bjuggu til
myndbönd, gerðu líkön af merkisbyggingum og settu upp líkan af
Grindavíkurbæ ásamt mörgu, mörgu fleiru. Á sama tíma var hinn árlegi
jólaföndursdagur Foreldrafélagsins. Eins og sjá má á þessum myndum var mjög
gestkvæmt allan tímann sem hátíðin stóð yfir og var það mál manna að
sýningin og dagurinn í heild sinni tókst með afbrigðum vel enda lögðu
nemendur og starfsfólk hug og hjörtu í verk sín. Gestir voru sammála
að það væri einstakt tækifæri að fá að sjá hversu megnugir grindvískir
nemendur eru þegar á hólminn er komið. Nemendur eiga því mikið hrós
skilið fyrir þau frábæru verk sem þeir unnu þessa daga. Ráðgert er að
leyfa verkunum að njóta sín næstu vikurnar og geta þeir sem ekki áttu tök á
að heiðra okkur með nærveru sinni , komið og skoðað skólann okkar
Grindvíkinga. |
 |
|
Afmælisár skólans - þemadagar

Um þessar mundir eru 120 ár síðan barnafræðsla í Grindavík og um
leið 60 ár frá vígslu Barnaskólans hér í bæ, nánar tiltekið þann 30. ágúst
1948. Árið 1888 var í fyrsta sinn ráðinn til Grindavíkur maður sem
hafði barnakennslu sem aðalstarf. Sá maður hét Pétur Guðmundsson.
Til samanburðar má nefna að skólaárið var samtals 18 vikur miðað við
38 vikur sem það er í dag. Þá var
kennt á þremur stöðum 6 vikur í senn, að Hrauni, í Garðhúsum og á Stað.
Eins og gefur að skilja hefur mikið breyst frá þessum tímum. Bygging
Barnaskólans var mikið framfaraskref stórhuga manna. Þá töldu hér 500
bæjarbúar. Húsið var tvílyft með leikfimisal í vesturálmu. Á neðri hæð
voru 2 kennslustofur, baðherbergi, gufubað, 2 búningsherbergi, 2
snyrtiherbergi, 6 salerni og 1 geymsla. Á efri hæð voru 3
kennslustofur, þar af 1 ætluð fyrir skólaeldhúsog önnur til handavinnu
drengja, skrifstofa skólans, kennarastofa, íbúð húsvarðar, 1 snyrtiherbergi
og 1 salerni. Það er til marks um breytta tíma að skólabygging okkar
rúmar nú um 500 nemendur (sami fjöldi og bæjarbúar voru árið 1948) en
undanfarin ár hefur þrengt nokkuð nemendum. Til að mæta þessum
þrengingum voru 3 útistofur teknar í notkun fyrir nokkrum árum síðan.
Miklar breytingar munu þó eiga sér stað haustið 2009 þegar nýr skóli verður
tekinn í notkun.
Dagarnir 26.-28. nóvember eru því tíleinkaðir þessum viðburðum. Þá daga verður
lögð áhersla á umfjöllun um skólastarf í Grindavík frá upphafi
barnafræðslunnar ásamt málefnum sem tengjast heimabyggðinni.
Laugardaginn 29. nóvember verður hið árlega jólaföndur Foreldrafélagsins
haldið hér í skólanum. Á sama tíma mun afrakstur þemadaganna verða
bæjarbúum til sýnis.
Það á mjög vel við að nýr skólastjóri, Páll Leó Jónsson, hefur tekið til
starfa á þessum tímamótum. Hann hefur margra ára stjórnunarreynslu og
má þar nefna að um tíma var hann skólastjóri á Blönduósi, einnig á Selfossi
og að lokum aðstoðarskólastjóri í Hveragerði. Viljum við bjóða hann
velkominn til starfa.
Eflaust munu nemendur leita á náðir bæjarbúa við gagnaöflun fyrir þessa
sýningu. Vonumst við að nemendm verði vel tekið og að bæjarbúar geti
lagt sinn skerf í að gera þemadagana sem glæsilegasta, nemendum til heilla
og öðrum til ánægjuauka.
Sjá auglýsingu
|
 |
|
Nýr
námsráðgjafi tekinn til starfa Guðrún
Jóna Magnúsdóttir hefur tekið til starfa sem námsráðgjafi við
Grunnskóla Grindavíkur. Guðrún er okkur flestum vel kunnug þar
sem hún hefur starfað hér áður sem kennari við skólann. Hún
tekur við starfinu þar sem Guðrún Inga er í veikindaleyfi. VIð
viljum því bjóða Guðrúnu Jónu velkomna til starfa.
|
|
|
Útivistardagurinn 11. október
Stjórn foreldrafélags grunnskólans vill koma því á framfæri að fjölskyldu og
útivistadeginum sem átti að vera 4.okt. er frestað til laugardagsins 11.
október. Nánar auglýst síðar.
Mánudaginn
7. okt. kl. 20:00 verður Kristinn Reimarsson með fyrirlestur á sal skólans
þar sem kynntar verða niðurstöður könnunar sem var tekin hjá nemendum
síðasta vetur. |
 |
Stuttar
fréttir úr skólalífinu 2009-10
Stuttar
fréttir úr skólalífinu 2008-09
Stuttar fréttir úr skólalífinu
2007-08
Stuttar fréttir úr skólalífinu
2006-07
Stuttar fréttir úr skólalífinu
2005-06
Stuttar fréttir úr skólalífinu
2004-05
|
|
|
|